Læknir, læknir.

Læknir, læknir hrópaði Björn Ingi sárkvalinn og vissi ekki hvort hann væri að koma eða fara úr rúminu.  Þú bara verður að hringja á lækni segir eiginkonan, áhyggjufull á svip.  Æ, æ, ó, ó, ég lifi víst ekki nóttina af og hvað gerir Framsóknarflokkurinn þá?  Kona Björns Inga hringir síðan á eina lækninn sem sinnir bráðútköllum innan borgarstjórnar Reykjavíkur.  Drrriing, drrring, er þetta doktur Dagur?  Já, hver er þetta?  Komdu í einum Framsóknargrænum heim til Björns Inga, þetta er spurning um líf eða dauða.  Dagur mætir um miðja nótt og sér þar Björn Inga bláfölan talandi tungum.  Það verður dýrt að lækna þetta segir Dagur.  Við þessi orð opnar Björn augun og tekur fast utan um hönd Dags og segir, ég geri hvað sem er til að losna við þessar óbærilegu kvalir.   
mbl.is Svandís: „Valhöll getulaus í erfiðum málum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 EG ER VISS UM AÐ LIKA HAFA VERIÐ KALLAÐIR TIL AÐSTOÐAR LÆKNAR FRA KEFLAVIK.eN NEI ÞEIR HEFÐU EKKI RAÐIÐ VIÐ ÞENNAN SJUKDOM ANNARS EIGA ÞEIR TIL AÐ KOMA A OVART ALDREY AÐ VITA.kVEÐJA Helga

Helga valdimarsdottir (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 22:27

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Góður

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 12.10.2007 kl. 22:34

3 Smámynd: Halla Rut

haha góður þessi.....

Halla Rut , 12.10.2007 kl. 22:52

4 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Björn Ingi fékk snert af frálshyggju og af því að hann hélt sig ekki í rúminu þá heltók hann alfreðcoplioptica sem er bráðsmitandi. Því fór sem fór. OG Dagur og Ólafur eru báðir læknar. Þarf að segja meira?

Ævar Rafn Kjartansson, 13.10.2007 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 121695

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband