Íslenska útrásin

Ástandið í Írak eins og það birtist okkur í fréttum mbl.is er vægast sagt skelfilegt.  Morð á óbreyttum borgurum í þúsunda tali, dag eftir dag.  Flestir íbúar landsins lifa í stöðugum ótta og vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.  

Þetta ástand er samstarfsverkefni Íslands, Bandaríkjanna og Bretlands ásamt mörgum öðrum friðelskandi löndum.  Innrásin var farin til að bjarga heiminum frá bráðri ógn og hjálpa Írökum.  Í dag hefur Íslendingum og hinum friðelskandi samstarfsþjóðum tekist að bjarga hátt í tvöhundruðþúsund Írökum frá leiðinlegu hversdagslífi og sent beint í gröfina.irak07

Ekki kunna allir Írakar að meta þennan björgunarleiðangur og sumir Íslendingar ekki heldur.  En það má ekki horfa til baka ef við ætlum að bjarga fleirum.  Og allir þeir sem telja að morð eigi ekki rétt á sér skulu minnast orða Davíðs Oddssonar sem sagði efnislega eitthvað á þessa leið, þeir drepast nú hvort sem er einhverntíma og það er friður og ró í eyðimörkinni þar sem engin er. 

Þessi afstaða Davíðs Oddssonar til lífsins er alveg dæmigerð fyrir þá sem líta niður á aðra.  Hvort sem það er vegna trúar, kynþáttar, peninga eða annars.  Því miður hefur svona fólki vaxið kraftur síðustu árhundruðin og lítið við því að gera.  


mbl.is Tala látinna í Írak hækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gott að einhver skuli halda uppi andófi gegn þessu siðlausa stríði.

Steingerður Steinarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband