Ekki lýðræði bara ESB

Í grein í Fréttablaðinu við hliðina á Miele auglýsingunni gerir gamli kennarinn minn, Andrés Pétursson, því í skóna að lýðræði á Íslandi og ESB sé sambærilegt.  Hann nefnir sem dæmi að "ríkisstjórn" ESB sé valin sameiginlega af Evrópuþinginu og ríkisstjórnum einstakra landa.  Löggjafarvaldið sé síðan í höndum ráðherraráðsins og Evrópuþingsins.  Allt þetta sannar að mati Andrésar að lýðræðinu sé vel borgið innan sambandsins.

En hvað er lýðræði?  Þessari spurningu veltir Andrés ekki fyrir sér og gengur út frá því að allir séu að hugsa það sama og hann.  Nefnilega að lýðræði þýði í raun að venjulegt fólk hafi lítið um sín mál að segja og feli fámennri klíku öll völd fyrir sína hönd.  

Á bak við hvern kjörinn fulltrúa Alþingis eru um það bil 4.800 Íslendingar en í ESB eru nálægt 620.000 einstaklingar á bak við einn þingmann á Evrópuþinginu.  Á Íslandi þarf aldrei neinn að aka meira en 1000 km. ef sá sami vill henda eggjum í þinghúsið!  Fyrir suma þegna ESB tekur það vikur að koma bílnum sínum fyrir framan þinghúsið.

Til að gera langa sögu mjög stutta þá er nánast öll tölfræði ESB í óhag.  Andrés Pétursson horfir vísvitandi framhjá þessum staðreyndum og gengur með þær grillur í höfðinu að íslenska þjóðin vilji hafa stjórnvöld úr kastfæri.  En atburðir síðustu daga benda ekki til þess!


mbl.is Hvítborðar boða Nýtt lýðveldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er mikið af gleri í Babel turni ESB, en þeir hafa væntanlega vel útbúna og mannmarga óeirðalögreglu... svona ef skríllinn í ESB verður svo þreyttur á nýju sovéti að hann reyni að marsera í eggjakast.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 21:34

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Persónulega finnst mér íslenska Alþingishúsið krúttlegra en Babelturninn í Strasbourg.

Björn Heiðdal, 26.1.2009 kl. 18:27

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

  • Víst er Heiðdal þarfaþing:
  • þessi sérhvern Íslending
  • frætt nú getur
  • flestum betur
  • heims um svæsna svívirðing.

  • Krúttleg sízt er Babelsborg,
  • hvar bændur sturta skít á torg
  • (fúlegg hrjóta
  • á höllu ljóta);
  • þyngri er tárum þeirra sorg.

  • Forðumst slíkra forlög ill.
  • Fullveldi hver maður vill:
  • sér að ráða
  • til sinna dáða.
  • Íslenzk sál, þitt Ísland hyll!

Jón Valur Jensson, 17.2.2009 kl. 04:15

4 identicon

Nú er illt í efni frændi sæll, Jón Valur farinn að mæra þig!

J (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband