Þurfum að hugsa um hag ESB

Á tímum samvinnu og Samfylkingar þurfa Íslendingar að horfa framan í sjálfa sig og spyrja.  Hvað getum við gert fyrir ESB.  Svarið er einfalt.  Við þurfum bara að ganga í sambandið og framhaldið kemur sjálfkrafa.  Hættum allri sjálfselsku og hagsmunavörslu og göngum ESB á hönd eins og Ingibjörg Sólbjört vill gera.

 

 


mbl.is ESB myndi stjórna hafsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Muddur

Ég er alveg sammála. Þetta er bara bölvuð frekja og sjálfselska í okkur Íslendingum að ætlast til þess að fá að halda í okkar dót, þegar öll hin börnin vilja líka fá að leika sér með dótið okkar. Allir krakkarnir eiga að leika sér saman með allt dótið, það sagði mamma mín allavega. Að vísu kom það nú oft fyrir að stærstu og sterkustu krakkarnir sönkuðu að sér öllu besta dótinu og létu ljóta og lélega dótið til minni krakkanna. Að öllum líkindum myndi það sama gerast hér ef við værum innan ESB, þ.e. að stóru og sterku krakkarnir (aðallega Þjóðverjar og Frakkar) myndu vilja leika sér með okkar dót á meðan við fengjum voða lítið í staðinn, en hey! Svona er nú bara lífið, og við eigum að taka því með bros á vör og láta ekki bugast þó á móti blási, heldur bjóða bara hinn vangann. Alveg eins og Jesú.

Muddur, 11.1.2009 kl. 23:59

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Reyndar held ég að Íslendingar geta orðið að herraþjóð innan ESB.  Fáum allt fyrir ekkert eins og kallinn með hattinn sagði!

Björn Heiðdal, 12.1.2009 kl. 00:09

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

við verðum að hefja útrás til Brussel. Við getum orðið herrar Evrópu og keypt bara upp alla ESB þingmennina á lánum sem við fáum svo ódýrt þegar við verðum komnir með evruna. því þá fyrst getur banka útrásin hafist og alþjóðlega fjármálamiðstöðin í reykjavík risið.

Fannar frá Rifi, 12.1.2009 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband