Færsluflokkur: Spaugilegt

Ég er fíflið úr Símaskránni!

Ég er sá sem gæti bjargað þessari þjóð frá glötun.  Ég er nefnilega þetta fífl úr Símaskránni sem allir eru að tala um.  Ég er hæfileika lítill og hæfilega lítill trítill með frosið bros sem sómir sér vel á alþjóðlegum blaðamannafundum.  Lítið kann ég og enga pólitíska reynslu hef ég fram að færa.  En ég þekki muninn á réttu og röngu.   Ég er með hjartað á réttum stað og vill allri þjóðinni vel.

Ég segi nei við Ingibjörgu og Geir.  Burt með lygar og leynipukur þeirra sem ráða eða hafa tekið ráðin burt úr okkar höndum.  Burt með alla þá sem vilja þjappa valdi undir sinn rass eða erlenda rassa.  Burt með fólkið sem getur ekki eða vill ekki.  Burt með landráðamenn og konur sem sjá erlent auðvald í hillingu.  Burt með þá sem vilja veðsetja mig og þig um ókomin ár.

 


mbl.is Við munum ekki láta kúga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband