28.3.2009 | 06:52
Líkræða Ingibjargar
Íslensk stjórnmál ganga út á að ljúga að fólki. Ljúga að kjósendum, ljúga að flokksmönnum, ljúga að veiku fólki, ljúga að öldruðum, ljúga og ljúga. Síðan þegar ráðamenn eru ekki að ljúga vita þeir ekki um hvað þeir eru að tala. Bulla hreinlega og búa til staðreyndir um leið og kjaftagatið opnast.
Ingibjörg hefur aldrei beitt sér fyrir að komið yrði böndum á bankana. Hún hefur aldrei talað um neitt annað en glæsta framtíð Íslands með bankana í forystu. Þeir væru það afl sem ætti að koma þjóðinni inn í nútímann. Hennar fjármálavit er jafn vitlaust og fjármálaráðherra. Ingibjörg heldur að verðmæti verði til í bönkum!
Þar verða bara til skuldir eins og komið er á daginn! En rifjum upp hvað bankamálaráðherra hafði um þessa hluti að segja.
5. ágúst 2008
Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það.
Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar.
Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma.
Í árslok 2006 má ætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás fjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi.
Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredirik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðan er sú að gagnrýnin var að verulegu leiti tilhæfulaus. Hinsvegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra.
Samskonar gagnrýni skýtur upp kollinum á nú í kjölfar þeirrar lausafjárkreppu sem kennd er við undirmálslán. Hún er þó ekki einskorðuð við íslenska banka, þar sem vandinn er alþjóðlegur.
Athygli vekur þó að háværasta gagnrýnin kemur frá samkeppnisaðilum bankanna á erlendum vettvangi. Löngum hafa sérfræðingar Danske bank haft horni síðu íslensku bankanna en fyrir skemmstu bættust Finnskir bankamenn í grátkórinn.
Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.
Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskir bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafi sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða.
Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslensku bankakerfið sé mjög stöndugt.
Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leiti til sem finnskar reglur þar að lútandi veita betri réttindi en íslenkar myndu bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einhverjir bankar kæmust í lausafjárskort.
Því er rétt að halda því til haga sem rétt er þegar reynt er að kasta rýrð á fjármálastofnanir okkar þegar kreppir að.
Til að fara yfir stöðuna og til að efla samvinnu stjórnvalda og fjármálafyrirtækja um fjárfestingar erlendis mun Viðskiptaráðuneytið kalla til fundar með Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs í janúar. Ætlunin er að skapa varanlegan vettvang fyrir slíkt samstarf og verður janúarfundurinn fyrsta skrefið í þá átt.
Siðrof í íslensku samfélagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- agny
- malacai
- kruttina
- axelthor
- duddi-bondi
- baldvinj
- bene
- kaffi
- bjarnihardar
- bleikaeldingin
- gattin
- baenamaer
- brandarar
- dora61
- ellyarmanns
- ea
- folkerfifl
- fridjon
- fridaeyland
- killjoker
- gislihjalmar
- gudni-is
- vglilja
- gummisteingrims
- muggi69
- gudnym
- gullvagninn
- maeglika
- haukurn
- heidathord
- heimssyn
- gorgeir
- hordurj
- hrafnathing
- isleifure
- jensgud
- jonnnnni
- enoch
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- hugsadu
- katrinsnaeholm
- karisol
- krist
- kristinhrefna
- kjoneden
- minkurinn
- vonin
- maggib
- maggaelin
- vistarband
- marinogn
- omarragnarsson
- huldumenn
- palmig
- fullvalda
- seinars
- sigmarg
- siggisig
- sigurjonn
- sms
- soley
- steingerdur
- tomasha
- tommi
- vefritid
- vertu
- vestfirdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þarna hefur niðurtalningin að hruninu verið komin ansi neðarlega, og samt er svona ræða haldin.... og engin man nema hælbítar eins og við :P
Gullvagninn (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 15:54
Gullvagninn (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 07:31
"Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma."
Har har har
Björn Heiðdal, 4.4.2009 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.