Stríðsátök ábatasöm.

Vegna aukinnar eftirspurnar væri alveg tilvalið að framleiða vopn á Íslandi.  Við höfum mjög ódýra og hreina orku ásamt hæfu starfsfólki.  Hálendið hentar síðan vel til skotæfinga.  Þar má bæði finna gönguhópa og fjölbreytt landslag.
mbl.is Kanada ver milljörðum í hernað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klósettfundur Össurar með Boy George.

Í nýlegu viðtali í Séð og heyrt sagði Össur frá skemmtilegu atviki sem átti sér stað í Lundúnum nýlega.  Hann var víst einn á karlakósetti að létta á sér þegar dyrnar opnast og annar maður stendur allt í einu við hliðina á honum.  Nema hvað þessi maður byrjar að strjúka rassinn á Össuri.  Fyrst í litla hringi en allt í einu klípur hann nokkuð fast í vinstri rasskinnina.  Össur lítur á manninn og sér þá að þetta var Boy George.  Söngvaranum var nokkuð brugðið en sagði þó að lokum "I thought your were some one else."  Össur sagðist hafa bara verið nokkuð ánægður með þessa uppákomu en næstu daga á eftir hefði hann verið utan við sig.  Kannski kleip Boy George í rassinn á Savari Gestssyni og Árna Matt? 

boy_george.jpg


Fann nokkrar krónur.

Fann nokkrar krónur í vasanum.  Verslaði í Bónus og hringdi síðan með Nova símanum mínum.  Nú á ég ekki krónu með gati.
mbl.is Krónan styrkist á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álver eða prumpandi beljur.

Margir vilja fleiri álver og stóriðju sem þýðir meiri mengun og losun gróðuhúsalofttegunda.  Ef Ísland ætlar að vera partur af "alþjóðasamfélaginu" verður þjóðin að draga úr losun.  Þetta þýðir einfaldlega að við verðum að velja milli stóriðju og fólksins í landinu.  ísland getur ekki bæði verið með álver og mengandi bílaflota, fiskiskip ásamt prumpandi beljum.

cow_shit.jpg    


mbl.is Ætla að draga mjög úr losun gróðurhúsalofttegunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankastjóri hótaði mömmu.

Þegar mamma gamla bað um niðurfellingu láns sagði bankastjórinn að engin hefði neytt hana til að taka það.  Mamma brast í grát og sagði að hún hefði þurft að borga fyrir jarðarför pabba annars hefði presturinn ekki nennt að hola kallinum ofan í holuna.  Bankastjórinn hrækti þá framan í hana og lofaði að taka húsið og vinstra nýrað hennar upp í skuldina. 
mbl.is Bankastjóra Kaupþings hótað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Thor ógnar starfsfólki Kaupþings.

Björgólfur Thor hefur sent starfsfólki Kaupþings bréf þar sem hann hótar því barsmíðum og atvinnumissi ef skuldir hans verða ekki felldar niður.  Í bréfinu sem er víst mjög dónalegt kemur fram að Björgólfur hafi tekið lánið í þeirri trú að hann þyrfti ekki að greiða það.  Það væri því mjög óeðlilegt að leka þessum upplýsingum í fjölmiðla enda trúnaðarmál.  Í lok bréfsins kom fram að Björgólfur vonaði að Íslendingum fækkaði mikið á næstu árum.
mbl.is Öryggi starfsmanna ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur Skarphéðinsson kaupir hórur.

Í ræðu sem Össur hélt á kvennafrídeginum sagði hann að allar íslenskar konur ættu rétt á vinnu.  Í nýlegri heimsókn til Kúbu hefði hann fengið ýmsar góðar hugmyndir.  Þar væri raunverulegt atvinnuleysi ekki svo mikið því margar konur stunduðu vændi sem ekki væri gefið upp til skatts.  Hann hefði því ákveðið að leggja fram nýtt vændisfrumvarp þar sem kaup á vændi yrði á ný gert löglegt.  Í lokinn sagði ráðherra að nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar væri á förum til Hollands til að kynna sér þessi mál.

 


mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Góð ráð dýr?

Steingrímur Jensen Sigfússon sagði að góð ráð hefðu bara verið alltof dýr og íslenska ríkið væri í greiðsluerfiðleikum.  Þess vegna hefði verið ákveðið að kaupa bara ódýr ráð.  Í mörgum tilfellum hefði síðan íslenska samninganefndin fengið ókeypis ráð frá Bretum og Hollendingum.  Eitt ráðið hefði t.d. verið að borga og hætta þessu vesini.  Í lokinn sagði Steingrímur að íslenska lambakjötið væri það besta i heimi og Hollendingar öfunduðu okkur mikið.

 


mbl.is Þingmenn fái að sjá öll Icesave gögn - líka þau hálfkláruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútaði Björgólfur Vigdísi forseta?

Í nýlegu viðtali sem blaðamaður BBC átti við Björgólf Thor kom fram að honum þættu íslenskir embættismenn afskaplega ódýrir.  Það kostaði nánast ekkert að múta þeim enda hugtakið ekki til í íslensku.  Sem dæmi hefði hann þurft að borga einum rússneskum embættismanni yfir 50.000 dollara til að falsa pappíra og ljúga fyrir sig í réttarhöldum.  Á Íslandi hefði öll ríkisstjórnin borgað honum tífalda þá upphæð fyrir að taka að sér Landsbankann.  Í lok viðtalsins kom fram að Björgólfur var bjartsýnn á framtíð sína en íslenska þjóðin yrði sennilega að éta skít og drullu það sem eftir væri.  

 vigdisfinnbogadottir.jpg

 

 


mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Eiga starfsmenn banka skilið laun?

Ég leyfi mér að efast að bankafólk eigi skilið laun.  Skiptir engu þó viðkomandi hafi verið venjulegur gjaldkeri eða bankastjórinn sjálfur.  Það ætti eiginlega að fangelsa allt þetta lið og Alþingismenn. Fangaverðirnir í Auswits voru líka bara að vinna vinnuna sína. 

sult_s.jpg


mbl.is Óvissa með laun starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband