Vasapeningar barna skattlagðir!

Samfylkingin með heilaga Jóhönnu hefur ákveðið að skattleggja vasapening barna og unglinga í landinu.  Haft var eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að tími væri kominn á að unga fólkið í landinu borgaði skuldir Björgólfs yngri.  Þetta væri líka réttlætismál og næst á dagskrá væri að skattleggja heimavinnandi húsmæður.  Aðgerðið ríkisstjórnarinnar væri liður í jafnréttisáætlun vinstri flokkanna og í samræmi við kosningaloforð.
mbl.is Harðar tekið á svikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin gubbar yfir þjóðina.

Elliærir eldriborgarar í Samfylkingunni og bankaræningjar í öllum flokkum hafa tekið völdin.  Meðan lögreglan æðir um landið í leit að hassplöntum og ökuníðingum á hundrað kílómetrum fær Jóhanna og gengið hennar að rústa efnahag þjóðarinnar.  En þetta er ekki okkur að kenna segja sumir,  Davíð stal kökunni úr krúsinni.  Hvernig væri þá að fara að baka fleiri kökur en ekki reyna að ná þeim út úr afturendanum á Jóni og Gunnu.
mbl.is Undirritað ef sátt næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýju lögin handa mér og þér.

Ef þessi lög er ekki ætluð til að ná í þjófnað Landsbankamanna handa hverjum eru þau þá?  Auðvitað handa venjulegu fólki sem ekki getur borgað sökum fátæktar og atvinnuleysis.  Til hamingju nýja Ísland.
mbl.is Nýjar víðtækar heimildir til upptöku eigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Björgólfur hlær alla leið í bankahólfið sitt.

Hvenær ætlar þjóðin að vakna upp og átta sig á plottinu.  Það er verið að lögleiða stærsta rán Íslandssögunnar.  Samspillingin sem var í stjórn með óhæfuflokknum en er nú í einni sæng með Ragnari Reykás, er helsta klappstýra ránsins.  Sjá tilvísun í Samspillingarpóst.
mbl.is Langt í land í stöðugleikaviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Satan sjálfur ekki Björgólfur álfur

Ég hélt að Björgólfur væri Jesú Kristur endurfæddur en það var rangt mat, kolrangt.  Hann er miklu frekar satan sjálfur í líki brosandi milljarðamærings.  Virkar pínu feiminn sökum málróms en er í raun jarðýta sem valtar yfir allt og alla. 

Sennilegt er að Landsbankinn, banki tveggja landsmanna, hefði ekki fengið að stela hollenskum og breskum peningum nema sökum Björgólfs.  Hann hafði það traust og þann velvilja stjórnvalda sem til þurfti.  Með leynisamninga upp á vasann þar sem íslensk stjórnvöld skuldbundu sig til að borga allt Icesave tilbaka var leikur einn að stela.

Algjör snilld!
mbl.is Sögðu ríkið ábyrgjast Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seldi Geir Ísland fyrir vini sína?

Geir Haarde seldi Ísland þ.e.a.s. fólkið og auðlindirnar svo vinir hans gætu tekið þátt í Matadorspili elítunnar.  Geir og vinir stálu peningum frá fólki í Hollandi og Bretlandi.  Fjárhæðum sem voru margföld íslensk fjárlög.  Allt með vitund og leyfi stjórnvalda í þessum tveimur löndum.  Því Geir var búinn að lofa að borga þessar upphæðir til baka.  

Þetta Icesave leikrit var sett á svið til að koma þjófnaðinum í löglegan búning.  Björgólfur tók við aurnum.  Sumt fór í hans vasa en annað fengu eigendur Íslandsbanka og Kaupþings.  Margir fengu aur til að leika sér með.  M.a. þeir sem settu löginn og áttu að framfylgja þeim.  

Björgólfur yngri tilheyrir alþjóða elítunni.  Hann fékk leyfi hjá Geir að veðsetja íslensku þjóðina.  Þjóð sem er svo vitlaus að hún heldur að þetta hafi verið klúður.  Sér ekki snilldina í þessum þjófnaði og heldur áfram að versla við Nova og Bónus.  

Ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira um þetta.  Ætla frekar að fá mér einn McDonalds með Diet Coke og horfa á Jackass 2.  Nýja Ísland here I come.


mbl.is Rætt við matsfyrirtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ASÍ stéttarfélag vinnuveitanda?

Ég held að Gylfi og Vilhjálmur færu létt með að skiptast á starfi.  Þeir eru nefnilega báðir að verja hagsmuni lífeyrirsjóða og stórfyrirtækja.  Þeir segja nánast sömu hluti og Gylfi er meiri segja búinn að raka sig svo Vilhjálmur geti kysst hann almennilega.  Þakkað honum fyrir samstarfið með einum vel blautum rembingskossi.Kissing
mbl.is Halda áfram viðræðum í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BBC skrökvar

Ekki er allt sem sýnist og hefur BBC verið staðið að fréttafölsunum.  Hvar er sú frétt?

http://www.bbc.co.uk/blogs/theeditors/2009/06/what_really_happened.html


mbl.is Óeirðir á götum í Teheran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfyrirtækin skapa ekki gjaldeyri.

Margar fávísar konur og heimskir menn halda að álfyrirtækin skapi gjaldeyri.  Svo er að sjalfsögðu ekki nema í litlu mæli.  Þau borga laun og kaupa kannski íslenskan mat en þá er allt upp talið.  Gróðin fer í þeirra eigin vasa og Landsvirkjun borgar erlendar skuldir.  En hvað sagði forstjóri Alcoa um málið?

Fréttablaðið ræðir líka við Tómas Sigurðsson, forstjóra Alcoa á Íslandi, og aftekur hann með öllu að Alcoa hafi átt í óeðlilegum gjaldeyrisviðskiptum. “Við störfum samkvæmt fjárfestingarsamningi og í honum eru ákveðnar reglur um okkar gjaldeyrisviðskipti. Öll okkar viðskipti eru í samstarfi við Seðlabankann.” Tekið skal fram að öll álfyrirtækin hér á landi hafa undanþágur frá reglum um gjaldeyrismál. Þar á meðal 9. grein sem fjallar um skilaskyldu á erlendum gjaldeyri, sem er einmitt sú grein sem FME leggur mesta áherslu á í sinni rannsókn.

Það er einmitt það, öll álfyrirtækin hafa undanþágur frá reglum um gjaldeyrirmál.

 

 


mbl.is Fara framhjá gjaldeyrishöftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til sölu kennslumyndband í kannabisræktun.

Til sölu vandað kennslumyndband fyrir konur sem vilja stunda vændi í heimahúsum.  Farið er yfir alla helstu þætti sem skipta máli í ástartækni og öryggismálum.  Kennt er hvernig hægt er að yfirvinna feimni, sjá í gegnum kalla sem ekki eiga nægan aur og kynsjúkdóma.  Verð aðeins 3990 kr.

Höfum einnig til sölu nýtt kennslumyndband í kannabisræktun.  Tilvalið fyrir eldriborgara sem eigi erfitt með að ná endum saman.  Hægt er að stunda ræktunina í heimahúsum og þarf ekki mikla sérkunnáttu til.  Í myndbandinu verður farið yfir hvar má nálgast græðlinga, áburðargjöf, birtuskilyrði og varnir gegn forvitnum nágrönnum og lögreglu.  Verð aðeins 4990 krónur.
mbl.is Hert skatteftirlit boðað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband