Fangar fjarmagna nýtt fangelsi.

Hópur íslenskra fanga hefur boðist til að reisa og reka nýtt fangelsi.  Talsmenn hópsins, Lalli Jónsson og Jónas Rassmussen, telja framvkæmdina vera góða lausn fyrir ríkið.  "Þetta á eftir að spara miklar fjárhæðir." Sagði Lalli í viðtali við féttamann.  Hugmyndin er ekki ný en hefur alltaf verið slegin út af borðinu sökum öryggissjónarmiða.  En á nýlegum landsfundi Samfylkingarinnar sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson að í erfiðu árferði kæmi allt til greina. 

Jóhanna Sigurðardóttir, sem er ný gengin í hægri arm Sjálfstæðisflokksins, sagði að þörf væri á tveimur til þremur nýjum fangelsum á næstu árum.  Sérstaklega væri mikilvægt að gera ráð fyrir þeim einstaklingum sem ekki gætu borgað skattana sína og matarþjófum.  Árni Páll Lygason félagsmálaráðherra sagðist vilja sjá blóðbanka starfandi í kjallaranum og föngum yrði skilt að gefa blóð sem mætti síðan selja til NATO og annara friðarsamtaka.  

Lalli og Ragnar telja blóðsölu ekki koma til greina og vona að númeraplötubransin taki við sér.  Þeir telja líka að stjórnvöld eigi að nýta sér sérþekkingu margra fanga og hefja ræktun og útflutning á dópi til Hollands.  


mbl.is Í athugun að einkaaðilar reisi fangelsi sem ríkið leigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilinn misskilningur.

Hugsjónir, stefna og kraftur týnst.  Var ekki Þór Saari og félagar þau duglegustu í þinginu í þessu Icesave máli.  Létu almenning vita hvað stóð til og stóðu í lappirnar.  Er ekki herra Skagfjörð að ganga gegn stefnu hreyfingarinnar með því að skilgreina hana sem "venjulegan" stjórnmálaflokk. 
mbl.is Bjóða sig fram í stjórn Borgarahreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk er fífl og þessi líka.

Er Björn virkilega á móti ESB eða er hann bara að þykjast.  Spila á kjósendur eins og allir hinir ræningjarnir við Austurvöll.  Þó Björn sé hættur á þingi virðist áhugi hans á að bulla framan í almenning enn vera til staðar.  ESB hefur nefnilega allt sem Björn gæti dreymt um.  Lög og reglur í kílómetravís.  Spillt embættismannakerfi sem tekur ákvarðanir bak við luktar dyr og veruleikafirrta stjórnmálastétt. 

Finnst engum það skrítið að flestir Alþingismenn eru búnir að vera í bransanum lengur en elstu konur kæra sig um að muna eða eru talsmenn auðmanna og stórfyrirtækja.  Sigmundur Ernir ætlaði að siðvæða þingið en datt óvart í það í boði bankamafíunar.  Fyrst drakk hann, síðan laug og baðst loks afsökunar.  Ekki fyrir lygarnar heldur glasið góða.  

Skallagrímur lofaði öllu fögru fyrir kosningar en gleymdi síðan hvar hann átti heimi daginn eftir.  En sem betur fer fann hann innskó og rúm Davíðs.  "Þetta fer mér bara vel," sagði kappinn brosandi bak við luktar dyr.  Best að halda áfram að koma almenningi á hausinn svo AGS og vinir geti hirt ríkiseigur fyrir slikk.  ESB, hér kem ég.


mbl.is OECD blandar sér í íslensk stjórnmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bóluefnið hættulegra en flensan?

Er ég sá eini sem finnst skrítið að yfirvöld ætla að bólusetja fólk gegn þessari flensu þó hún sé ekki mjög hættuleg.  Samkvæmt fréttum var búið að ákveða að bólusetja fólk gegn einhverri flensu áður en svínaflensan fékk nafn.  Mörgum mánuðum áður en fyrsta skráða tilfellið leit dagsins ljós voru lyfjafyrirtæki búin að sækja um einkaleyfi og setja nauðsynlega pappírsvinnu í gang.

En hvað segir David Icke um málið.


mbl.is Lítil hætta á að svínaflensa stökkbreytist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grilla á kvöldin, stela á daginn.

Sjálfstæðisflokkurinn græðir á daginn og grillar á kvöldin.  Samfylkingin stelur á daginn og grillar á kvöldin.  VG bullar á daginn en stelur á kvöldin.  Framsókn stelur á daginn og kvöldin.

 redneck-grill.jpg


mbl.is „Verðum að velta breytingunum beint út í verðlagið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG taka þjóðina í x-gatið!

"Þetta eru góð tíðindi fyrir þjóðina og alveg sérstaklega almenning," segir Jóhanna forsætisráðherra.  Samkvæmt kaupsamningnum borgar Magma 30% út í íslenskum krónum með gati og restina eftir minni ef veður leyfir.

Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður OR, segir að nú ljúki verkefni sem yfirvöld hafi falið honum að klára.  Hann sé vongóður um að margir græði vel á þessu og í framtíðinni verði Ísland með hæsta raforkuverð í heimi til heimila.  

Steingrímur fjármálaráðherra sagði við sama tækifæri að næst á dagskrá væri að selja vatnsból og loka sjúkrahúsum.  Þannig mætti spara peninga og fækka fólki sem tæki of mikið pláss og mengunarkvóta frá stóriðju.  

 

 


mbl.is Samþykktu kauptilboð Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel menntuð þjóð og gáfuð!

Herra Ross lofar að græða peninga á þessu öllum heiminum til hagsbóta.  Samkvæmt viðtali við kappann er hann hér til að aðstoða Íslendinga út úr kreppunni.  Með afsali orkulinda þjóðarinnar þurfa Íslendingar ekki að hafa áhyggjur af gróðanum.  Ráðamenn geta einbeitt sér að skattpíningu og hrekja fólk af heimilum þess.  Ross var einnig ánægður með þau kjör sem hann fær.  Sagði hann að þau væri þau bestu í heiminum enda Íslendingar vel menntaðir og gott fólk.
mbl.is Vilja hækka auðlindagjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bóluefnið hættulegra en flensan?

Síðast þegar svínaflensan gerði vart við sig drap bóluefnið fleiri.  Skyldi sagan endurtaka sig?

 svine-flu.jpg


mbl.is Frakkar og Bretar fá bóluefni gegn H1N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan of lág, not!

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að kónan sé of lágt skráð, NOT!  Síðan hlær hann rosalega og segir að málið sé pólitískt.
mbl.is Krónan of lágt skráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin sér um sína!

Jóhanna Sigurðardóttir, leikkona og fyrrverandi flugfreyja, hefur samþykkt söluna fyrir sitt leyti.  Var sú ákvörðun tekin í fullri sátt innan þingflokks Samfylkingarinnar.  Aðspurð sagði Jóhanna að þetta væri partur að velferðarbrúnni sem flokkur hennar boðaði í síðustu kosningum.  Velferð fyrir auðkýfinga og fjárglæframenn.  Þegar búið væri að selja alla innviði samfélagsins gegn óveðtryggðum kúlulánum ætti almenningur eftir að finna verulega fyrir því.  Vonandi til hins betra en til þess væri leikurinn gerður.  Jóhanna tók einnig fram að Ísland yrði fyrst út úr kreppunni því Íslendingar væru vel menntaðir og skynsamir.
mbl.is Vilja að stjórnvöld hindri kaup Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband