Valgerður Bjarnadóttir ruglar um ESB

Í grein sinni í fréttablaðinu upplýsir varaþingmaðurinn hvers vegna  Samfylkingin vill ganga í ESB.  En þar segir hún, með leyfi Hannesar, ... íslenska þjóðin er eins og korktappi í ólgusjó innan um hákarla sem líta ekki við honum.  Ef við gætum fengið álfadísina góðu úr sögunni um Gosa gætum við breyst í lítinn sætan kafara sem gerði okkur mun girnilegri í augum stóru hákarlanna.

Valgerður heldur áfram og segir, með leyfi Hannesar, "Fullveldi er loðið hugtak sem er síbreytilegt og skiptir í raun engu máli.  Íslendingar og alveg sérstaklega ég og annað Samfylkingarfól teljum að við getum ekki stjórnað okkur sjálf án þess að stórskaði hljótist af.  Þess vegna verðum við að ganga í ESB."  

Aftur með leyfi Hannesar, "EFTA og EES er bara prump um ekki neitt og veit ég ekkert hvað þessar skammstafanir þýða enda alveg svakalega leiðinlegt að kynna sér það.  Ég veit reyndar ekki heldur hvað ESB þýðir en held að það þýði fleiri koktelboð handa mér og mínu fólki ásamt einkaþotum til Brussel í bestu partíin."

Í þessari grein sinni gerir varaþingmaðurinn sér sérstakt far um að útskýra sína afstöðu með tilfinningarökum og rósrauðum fantasíum.  Ekkert af því sem hún segir á skylt við raunveruleikann né eru góð rök fyrir inngöngu Íslands í ESB.  Það verður að gera þá lágmarkskröfu til fólks sem vill vinna land og þjóð einhvert gagn að það kynni sér málin frá fleiri hliðum en góðum sölumönnum og fallegum myndum.

 bush eu


mbl.is Ein ríkasta þjóð í heimi tekur ekki einhliða upp mynt annarrar þjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við í Samfylkingunni viljum bara vera með í þessu stórkostlega EU ævintýri.  Ef Ísland gengur í EU lækkar matarverð um helming, vatnið verður hreinna og lambakjötið okkar betra á bragðið.  Allir græða á inngöngu og alveg sérstaklega láglaunafólk með Jón Ásgeir í broddi fylkingar.  Þú veist ekkert hvað þú ert að segja!!!

Sigurður Rúnarsson (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 121750

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband