24.9.2008 | 07:20
Hugsjónalaus trúður
Kæri Helgi Hjörvar,
Mér finnst það frábær hugmynd að gefa/leigja erlendum aðilum þjóðarauð Íslands. Þessi hugmynd hefur verið reynd víða í heiminum. T.d. í Bolivíu með góðum árangri. En þar voru einmitt vatnslindir þjóðarinnar seldar einkaaðilum. Í kjölfarið hækkaði svo verðið og hætt var að sinna fátækum. Fátæka fólkið fær reyndar vatn en þarf að labba nokkra kílómetra til þess. Síðan fara allar tekjur af þessari vatnssölu beint í vasan á erlendum aðilum í samstarfi við innlenda ríkiskapitalsita (Helgi Hjörvar og vinir).
Módelið sem þú talar um er reyndar ennþá sniðugra. Losa ríkið við gullkálfa sína og afhenda samviskulausum stórfyrirtækjum. Öll uppbygging síðustu ára og framtíð íslensku þjóðarinnar eins og hún leggur sig seld til útlanda. En hvað ætlar þú að gera við alla peningana sem Rio Tinto kom með frá Hamborg? Ætlar þú að fjáfesta í hlutabréfum, gefa vinum þínum, geyma undir kodda eða bara eitthvað fallegt?
Það er dapurt þegar sjónlausir og stefnulausir menn eru farnir að ráða þjóðinni. Síðan eru vitgrannir fjármálaráðherrar með próf í hrossalækningum að keyra þjóðarskútuna í kaf. Guð hjálpi oss öllum.
Sóknarfæri að selja virkjanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- agny
- malacai
- kruttina
- axelthor
- duddi-bondi
- baldvinj
- bene
- kaffi
- bjarnihardar
- bleikaeldingin
- gattin
- baenamaer
- brandarar
- dora61
- ellyarmanns
- ea
- folkerfifl
- fridjon
- fridaeyland
- killjoker
- gislihjalmar
- gudni-is
- vglilja
- gummisteingrims
- muggi69
- gudnym
- gullvagninn
- maeglika
- haukurn
- heidathord
- heimssyn
- gorgeir
- hordurj
- hrafnathing
- isleifure
- jensgud
- jonnnnni
- enoch
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- hugsadu
- katrinsnaeholm
- karisol
- krist
- kristinhrefna
- kjoneden
- minkurinn
- vonin
- maggib
- maggaelin
- vistarband
- marinogn
- omarragnarsson
- huldumenn
- palmig
- fullvalda
- seinars
- sigmarg
- siggisig
- sigurjonn
- sms
- soley
- steingerdur
- tomasha
- tommi
- vefritid
- vertu
- vestfirdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála!
Heiða (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 07:41
Óheppilegt orðalag í niðurlagi (sjónlausir) en að öðru leiti er ég sammála.
Það sýndi sig að breyting á raforkukerfinu okkar gerði ekkert annað en að gera kerfið flóknara og dýrara fyrir neytendur.
Það er ekki hægt að ætla annað en þessi tillaga geri nákvæmlega það sama. Einka aðilar gera ríkari kröfu til þess fjármagns sem þeir setja í svona mál sem þýðir ekkert annað en hækkun á taxta til neytenda í einu eða öðru formi.
zaxi (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 08:36
Vel mælt. Hugsjónaleysið er algert. Fyrir hverja starfar þessi maður. Það vantar fleira fólk sem hefur starfað í félagsmálum fyrir almenning á þing, sem vinna fyrir fólkið í landinu. Eins og Zaxi segir, einkaaðilar gera aðrar kröfur um ávöxtun fjármagns, svo koma þessir aðilara eftir 20 eða 50 ár og segja að það sé nú komin hefð á þetta og hitt og þeir hafi lögmætar væntingar um að þetta réttarsamband haldi áfram og blablabla....
Gáfnaljósið (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 08:42
sýnir vel að það er sama hvorn vænginn á hrægamminum þú kýst, hægri, vinstri, miðjuna, kantinn, klærnar- þú færð alltaf sama hrægamminn við stjórn, og það skýrir af hverju samfylkingarmenn eru með sömu patentlausnir á tilbúnum vandamálum - einka(vina)væðing og almenningur borgar brúsann.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:47
Gott dæmi um vatnið í Bolívíu. En kannski sniðugra aðeins varfærnara orðalag um Helga. Það eru skoðanir hans í þessu máli sem eru vitleysislegar en hann er nú enginn trúður samt. Ég skrifa þetta: Að losa peninga - Raufarhafnarstemming hjá Helga Hjörvar
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 25.9.2008 kl. 02:44
Ég tek það fram af gefnu tilefni að hvorki Helgi né Hrannar hafa svikið mig. Orðalagið blindur og hrossalæknir eru að vísu nokkuð ónákvæmt. Betra væri að segja sjóndapur og hestalæknir eða dýralæknir með silfurskeið í munninum.
En auðvitað skiptir menntun og líkamleg fötlun engu máli. Bara myrkrið sem er inni í kollinum á ráðamönnum og öllum pólsku glæpagengjunum sem Björn Bjarnason flytur inn í gámavís. Þykist síðan ekki geta gert neitt til að stöðva liðið.
Það er vitað nákvæmlega hverjir koma til landsins, nafn, kennitala, heimilisfang, bókstaflega allt. En samt þykist Björn ekki geta fylgst með hverjir koma eða fara. Dularfullt?
Björn Heiðdal, 25.9.2008 kl. 05:24
Ljós Lúsifers lýsir þeim í myrkrinu
Gullvagninn (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 09:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.