Hugleiðingar um framtíðina.

Eftir nokkuð góðan dag þar sem ég klúðraði enn eina ferðina golfmóti sit ég hér og skrifa framtíðarspá mína.  Allir hugsa fyrst um sig og síðan fjölskyldu og þar næst vinnu eða áhugamál.  Þetta mun breytast og það all verulega.  Ríkið mun skipa fyrsta sæti í hugum flestra eftir nokkur ár.  Ekki endilega þetta íslenska þjóðríki með óhæfri ríkisstjórn sem ég þekki svo vel.  Nei, sennilega Evrópuríkið með alþjóðlega auðhringa undir sínum verndarvæng.

Þetta er kannski ekki alslæm framtíðarsýn a.m.k. fyrir þá sem ekki nenna að hugsa sjálfir.  Fá lög og reglur sendar beint að utan og kannski líka landsstjóra með próf í stjórnunarstörfum.  Sérfræðing sem veit hvað ég vil og þarf.  Skólakerfið verður notað til að byggja upp hentuga þegna sem ekki hugsa of mikið.  Fólk sem vill lifa einföldu lífi í skjóli stóra bróðurs.

En framtíðin verður ekki bara tóm sæla með svanga munna sem þarf að mata.  Hún verður grá og ljót.  Hún verður líka hættuleg fyrir þá sem vilja lifa lífinu sjálfstætt.  Sá blekkingarmúr sem ég lifi í fellur eins og spilaborg í þessum skrifuðum orðum.  Ég hélt að heimurinn væri það sem ég sæi í sjónvarpinu og heyrði vini og fjölskyldu tala um.  En mikið hafði ég rangt fyrir mér.

Heimurinn er ein alsherjar leikvöllur fyrir fólk með stjórnunaráráttu.  Fólk sem ekki vill koma í fréttirnar og er þar ekki sökum valda og áhrifa.  Hin raunverulegu völd eru ekki hjá ríkisstjórn Íslands eða ESB þinginu.  Þau eru geymd bak við luktar dyr og af fólki sem fæstar vita að eru til.  Samsæri eða bara raunveruleikinn skít kaldur. 

Afhverju gerist það nákvæmlega sama á Íslandi og út í hinum stóra heimi.  Bróðir minn heldur að þetta sé bara innbyggt í hið mannlega eðli.  Fólk svindlar og stelur og hagkerfi ganga í gegnum lægðir og toppa.  Allt höfum við séð áður og þetta nýjasta hrun er bara enn einn hringurinn í karma heimsins.  En ég segi að þetta er ekki karma eða óheppni.  Þetta er ekki einu sinni græðgi og mannvonska heldur skipulagt samsæri gegn almenningi í heiminum.  Svöngu börnin í Afríku og feiti krakkinn í Bretlandi eru fórnalömbin.  Sláturlömb væri kannski nær lagi.

Þegar búið er að hræða vitglóruna úr fólki með Al-Kæda og Bin Laden birtist næsta ógn.  Svínaflensan ógurlega.  Þó þessi flensi drepi færri en venjulegur flensufaraldur þá hafa heilu samfélögin lamast og tapað stórfé í leiðinni.  En alþjóðlegir lyfjarisar græða á tá og fingri.  Auðhringar sem eru í eigu mannanna á bak við tjöldin.  Tilviljun?

Internetið er búið að vera eða svo segir góður karl að nafni Rubert Murdoch.  Hann lofar okkur nýju og bættu neti með alþjóðlegri yfirstjórn og ritskoðun.  Ritskoðun til að vernda börn gegn barnaperrum.  Ritskoðun til að koma í veg fyrir að herra Hitler lifni við í gröfinni og byrja að predika sinn boðskap til 14 ára barna.  Sarkozy Frakklandskeisari vill refsa þeim sem hlaða niður ólöglegt efni og fylgjast með þvi sem fólk skoðar á netinu.  Ekki bak við tjöldin heldur yfir öxlina á mér.  

Gagnrýni á stjórnina verður glæpur og þeir sem voga sér að tala illa um náungan verða sóttir til saka.  Allt í nafni málfrelsis og lýðræðis.  

Sömu aðilar og sjá til þess að svöngu börnin í Afríku eru ennþá svöng reisa álver á Íslandi.  Eigendum fyrirtækjanna er boðið að kaupa íslenskt rafmagn á kúk og smá kanil.  Landsvirkjun er gerð gjaldþrota með lánunum sem hún getur aldrei borgað til baka.  Allt verður selt útlendingum til að borga skuldir Íslands.  Íslenska þjóðin verður þá eins og svöngu börnin í Nígeríu sem sofa ofan á risa olílindum en gróðinn fer í erlenda vasa.

Íslandsmiðum verður stjórnað frá Evrópu og þó allt fyllist ekki að spænskum togurum þá þurfa íslenskir sjómenn að fara aftast í röðina fyrir aftan Green Peace og biðja um kvóta.  Sjáum hvort íslenskir útvegsmenn fái að veiða eins mikið og þeira vilja eða verða alþjóðleg verndarsjónarmið ofan á.  Kannski er íslenski þorskurinn jafn gáfaður hvalirnir sem Evrópuríkið vill ekki veiða í dag.  

starship_troopers.jpgKlósettpappír er munaður og verður skattlagður sem slíkur.  Það verður settur skattur á barneignir til að koma í veg fyrir fólksfjölgun.  Eða ennþá betra, fólk þarf að sækja um leyfi til ríkisins til að eignast börn.  Skyndilega fer mér að líða eins og ég sé staddur í myndinni Starship Troopers þar sem þjónusta við ríkið er skilyrði fyrir frama og frjósemi.  Starships Troopers here I come, jibbí!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 121785

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband