Færsluflokkur: Bloggar

Icesave forsenda gríðarlegra framfara.

Erlendir sérfræðingar sem ég talaði við í morgun sögðu allir sem einn að Icesave samkomulagið væri forsenda fyrir framförum.  Hægt væri að ná verðólgu niður í 1-2% og gengið yrði jafnvel enn hagstæðara en þar var árið 2005.  Þeir gerðu einnig ráð fyrir aukningu ferðamanna og vaxandi eftirspurn eftir íslenskum fiski ef Alþingi samþykkti samkomulagið.  Nú er bara að vona að íslenskur almenningur borgi Icesave með hærri sköttum og lægri launum svo hjól framfara fari að snúast fyrir alvöru. 
mbl.is Daily Mail: Getur skaðað stöðu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svínaflensa leynist í skinku.

Afhverju skyldi þessi flensa vera kölluð svínaflensa.  Hún byrjaði í Mexíkó og ætti því frekar að vera kölluð mexíkanaflensan.  Kannski hef ég rangt fyrir mér og svínaflensa sé réttnefni.  Því ég borðaði nefnilega skinku um daginn og fékk smá ónot í magann og hita.  Ekki borða brauð með skinku og drekkið mikið vatn.


mbl.is Níunda svínaflensutilfellið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna lofar miklum framförum.

Jóhanna Sigurðardóttir lofar þjóðinni miklum framförum ef Icesave samkomulagið verði samþykkt í núverandi mynd.  Hagvöxtur muni t.d. aukast og atvinnuleysi minnka.  Síðan muni gengið á krónunni styrkjast og verðbólga falla í samræmi við það.  Allar líkur séu síðan að íslenska þjóðin verði fyrst þjóða heims laus við kreppuna.  Forsætisráðherra sagði líka að Íslendingar væru seinþreyttir til vandræða og íslenskar konur væru þær fallegustu í heimi.

 

 


mbl.is Leiðin getur orðið löng og erfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg lofar að gera betur.

Það sem ekki kemur fram í fréttinni er að Ingibjörg lofar lægra gengi og bættum lífskjörum strax í aðildarferlinu svokallaða.  Með viðræðum við ESB mun heimurinn allur sjá að henni og íslensku þjóðinni sé alvara í því sem hún og þjóðin eru að gera.  Svo mikil alvara að allt batnar og verður betra.  Ingibjörg segir líka að þjóðin sé langlíf og það muni hjálpa til við að borga Icesave.
mbl.is Hefði viljað stærri pólitískan samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran gæti farið í 60-73 krónur í umsóknarferlinu.

Talsmaður Íslands gerir ráð fyrir styrkingu krónunnar strax í umsóknarferlinu.  Þetta gerist vegna jákvæðra aðstæðna á ytri mörkuðum og traust alþjóðasamfélagsins á íslensku þjóðinni.  Reynsla annara þjóða hefur sýnt að kjör almennings batni um a.m.k. 10-100% á fyrstu dögum aðildar.  Talsmaðurinn vonar líka að innflutningur á frönskum ostum bæti tungumálakunnáttu í 10. bekk. 
mbl.is Neytendum til góða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin og Rúv ljúga!

Rúv lofar 70% verðlækkun á kjúklingum og eggjum til neytenda.  Vitnað er í skýrslu máli sínu til stuðnings.  Við lestur skýrslunar kemur í ljós að þetta er lýgi.  Þar segir að verð til bænda muni lækka um þessa tölu ekki til neytenda.  Bændur eru framleiðendur ef fréttamenn Rúv skyldu ekki vita það.  Verð til neytenda á kjötvörum er bara 21-36% lægra árið 2007 ef Norðurlöndin í ESB eru skoðuð.  Þetta segir skýrslan um verð til neytenda ekkert annað!

Þetta er ekki smá spinn eða umhverfisfegrun heldur lýgi og aftur lýgi.  Samfylkingin og helstu fjölmiðlar landsins vilja ekki staðreyndir í umræðuna heldur lygar sem henta málstaðnum.  


mbl.is Leyfir mönnum að kæla sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Thor vill ESB handa Íslandi.

Í viðtali við Björgólf lofar hann að tala við vini sína í Brussel og hjálpa Íslandi þar inn.  Minna geti hann ekki gert fyrir land og þjóð.  Bjórgólfur er einnig þakklátur fyrir þann mikla stuðning og hlýhug sem hann finnur fyrir hjá Íslendingum.  Icesave málið sé erfitt fyrir sig en með samstilltu átaki lands og þjóðar verði hægt að greiða skuldir sínar niður.  Fyrir það er hann þakklátur. 
mbl.is Mikil óvissa um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður friðarins í Írak.

Höfundur friðarferlisins í Írak hefur gefið kost á sér í nýtt friðarembætti ESB.  Ef Blair hlýtur brautargengi mun friður og lýðræði eflast í Evrópu og út um allan heim.  Þess vegna er mikilvægt að Tony komist til valda.  Össur Skarphéðinsson hefur lýst yfir stuðningi við Blair enda félagar í sama flokknum.  Talið er líklegt að Tony muni beita sér fyrir friðarferli í Íran og Sýrlandi. Össur sagði eitt sinn að honum litist vel á frið og friðarferli nema ef Davíð Oddsson kæmi nálægt því.  Þess vegna hefði hann alltaf verið á móti friðarferlinu í Írak.  En nú er Davíð ekki við völd og þess vegna nauðsynlegt að efla frið í heiminum og lýðræði.

  


mbl.is Skiptar skoðanir um hugsanlegt framboð Blair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

80% skattur og evra á 450 kr gæti aukið hagvöxt.

Í skýrslu Seðlabankans kemur fram að heimsmet í skattpíningu gæti leitt af sér verulegan hagsvöxt.  Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Joð hafa tekið undir þessa greiningu og vilja jafnvel ganga enn lengra til að tryggja meiri hagvöxt.  Heyrst hafa tölur um allt að 100% launa- og virðisaukaskatt.  Fjármálaráðherra sagði að málamiðlun milli ríkisstjórnar og Seðlabanka kæmi til greina.  Honum hugnaðist 90% skattur á almenning til að borga Icesave og önnur framfaramál.
mbl.is Ríkið ræður við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seljum Bill Gates orkuauðlindir Íslands.

Sá magnaði bæjarstjóri, Árni Sigfússon, hefur ákveðið að losa bæinn við orkuauðlindir sínar.  Kaupandinn heitir Bill Gates og er víst einn mesti mannvinur sem sögur fara af.  Hann hefur t.d. gefið starfsólki sínu frí um helgar en þó ekki allar helgar og fátækum börnum í Afríku ókeypis útgáfur af Microsoft Word og Windows.  Nú er bara að vona að Bill gefi Íslendingum Word og Windows þegar Árni og félagar verða búnir að koma okkur niður fyrir Afríku í lífsgæðum.  Lengi lifi Boris Jeltsín væðing Íslands og aukin glæpatíðni.
mbl.is Bæjarráð ljúki sölu HS orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband