Færsluflokkur: Bloggar

Bankastjóri hótaði mömmu.

Þegar mamma gamla bað um niðurfellingu láns sagði bankastjórinn að engin hefði neytt hana til að taka það.  Mamma brast í grát og sagði að hún hefði þurft að borga fyrir jarðarför pabba annars hefði presturinn ekki nennt að hola kallinum ofan í holuna.  Bankastjórinn hrækti þá framan í hana og lofaði að taka húsið og vinstra nýrað hennar upp í skuldina. 
mbl.is Bankastjóra Kaupþings hótað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Thor ógnar starfsfólki Kaupþings.

Björgólfur Thor hefur sent starfsfólki Kaupþings bréf þar sem hann hótar því barsmíðum og atvinnumissi ef skuldir hans verða ekki felldar niður.  Í bréfinu sem er víst mjög dónalegt kemur fram að Björgólfur hafi tekið lánið í þeirri trú að hann þyrfti ekki að greiða það.  Það væri því mjög óeðlilegt að leka þessum upplýsingum í fjölmiðla enda trúnaðarmál.  Í lok bréfsins kom fram að Björgólfur vonaði að Íslendingum fækkaði mikið á næstu árum.
mbl.is Öryggi starfsmanna ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur Skarphéðinsson kaupir hórur.

Í ræðu sem Össur hélt á kvennafrídeginum sagði hann að allar íslenskar konur ættu rétt á vinnu.  Í nýlegri heimsókn til Kúbu hefði hann fengið ýmsar góðar hugmyndir.  Þar væri raunverulegt atvinnuleysi ekki svo mikið því margar konur stunduðu vændi sem ekki væri gefið upp til skatts.  Hann hefði því ákveðið að leggja fram nýtt vændisfrumvarp þar sem kaup á vændi yrði á ný gert löglegt.  Í lokinn sagði ráðherra að nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar væri á förum til Hollands til að kynna sér þessi mál.

 


mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Góð ráð dýr?

Steingrímur Jensen Sigfússon sagði að góð ráð hefðu bara verið alltof dýr og íslenska ríkið væri í greiðsluerfiðleikum.  Þess vegna hefði verið ákveðið að kaupa bara ódýr ráð.  Í mörgum tilfellum hefði síðan íslenska samninganefndin fengið ókeypis ráð frá Bretum og Hollendingum.  Eitt ráðið hefði t.d. verið að borga og hætta þessu vesini.  Í lokinn sagði Steingrímur að íslenska lambakjötið væri það besta i heimi og Hollendingar öfunduðu okkur mikið.

 


mbl.is Þingmenn fái að sjá öll Icesave gögn - líka þau hálfkláruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútaði Björgólfur Vigdísi forseta?

Í nýlegu viðtali sem blaðamaður BBC átti við Björgólf Thor kom fram að honum þættu íslenskir embættismenn afskaplega ódýrir.  Það kostaði nánast ekkert að múta þeim enda hugtakið ekki til í íslensku.  Sem dæmi hefði hann þurft að borga einum rússneskum embættismanni yfir 50.000 dollara til að falsa pappíra og ljúga fyrir sig í réttarhöldum.  Á Íslandi hefði öll ríkisstjórnin borgað honum tífalda þá upphæð fyrir að taka að sér Landsbankann.  Í lok viðtalsins kom fram að Björgólfur var bjartsýnn á framtíð sína en íslenska þjóðin yrði sennilega að éta skít og drullu það sem eftir væri.  

 vigdisfinnbogadottir.jpg

 

 


mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Eiga starfsmenn banka skilið laun?

Ég leyfi mér að efast að bankafólk eigi skilið laun.  Skiptir engu þó viðkomandi hafi verið venjulegur gjaldkeri eða bankastjórinn sjálfur.  Það ætti eiginlega að fangelsa allt þetta lið og Alþingismenn. Fangaverðirnir í Auswits voru líka bara að vinna vinnuna sína. 

sult_s.jpg


mbl.is Óvissa með laun starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjarstjórinn græðir.

Í viðtali við pressuna sagði bæjarstjórinn að hann væri að stuðla að samkeppni og bættum lífskjörum fyrir íslensku þjóðina.  Hann hefði þá von í báðum brjóstum að Reykjanesbær yrði leiðandi á sviði endurnýjanlegrar orku.  Í lok viðtalsins bætti bæjarstjórinn við að íslenska þjóðin væri bæði falleg og gáfuð. 
mbl.is Óska upplýsinga um eignarhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

N1 lækkar verð á vatni.

Í tilefni af sumrinu lækkar N1 verð á íslensku vatni.  Í staðin fyrir að borga 440 krónur fyrir lítrann þurfa viðskiptavinir N1 aðeins að borga 380 krónur meðan birgðir endast.  Talsmaður neytanda sagði að um mikla kjarabót væri að ræða og fagnaði þessari ákvörðun.  Einnig verður tilboð á súkkulaði í völdum verslunum. 
mbl.is N1 hækkar bensínverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnabarn Steingríms Joð. græðir feitt..

Steingrímur fjármálaráðherra hefur gefið öllum skildmennum sínum leyfi til að kaupa gjaldeyri.  Barnabarn hans hefur t.d. grætt yfir 50 milljónir og ein gömul frænka yfir 135 milljónir.  Aðspurður sagði Steingrímur að hann væri á móti mismunun og gjaldeyrisbraski.  Hann ætlaði að taka hart á þeim sem nýttu sér þetta hörmulega ástand.  Steingrímur bætti við að íslenska þjóðin væri hamingjusöm og vel menntuð.
mbl.is Gjaldeyrisbraskarar græða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunasamtök Íslands senda frá sér nýja tilkynningu.

Samtök íslenskra hagmunasamtaka hafa stofnað ný hagsmunasamtök.  Tilgangur samtakanna verður að gefa samtökum tækifæri til að hittast og bera saman bækur sínar.  Í heilsíðuviðtali sagði Davíð Oddsson að honum litist vel á þessi nýju samtök.  Þau væri akkúrat það sem hann hefði talað um í aðdraganda bankahrunsins.  Davíð sagðist líka hafa varað við bankahruninu en bætti við að besti vinur hans, Kjartan Gunnarsson, hefði ekki komið nálægt neinu.  Hann hefði fengið það staðfest hjá ónafngreindum Háskólamanni.
mbl.is Vilja hagspá heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband