Færsluflokkur: Bloggar

Borgum Icesave leikurinn.

Í síðustu viku ákvað ríkisstjórnin að hrinda af stað þjóðarleik.  Hann heitir borgum Icesave og meira til.  Í viðtali við Ekki fréttablaðið sagði fjármálaráðherra að hugmyndin væri sótt í smiðju afa síns og ömmu.  Alltaf þegar hann var í heimsókn og vildi ekki borða matinn sinn þá lofaði afi honum nammi ef hann kláraði það sem var á diskinum.  Þetta bragð gafst vel og sagði Steingrímur að þetta yrði líka að duga á íslensku þjóðina.  Í staðin fyrir nammi ætlaði hann að lofa þjóðinni meiri skuldum og hærri skatta.  Í lok viðtalsins sagði Steingrímur að þjóðin væri vel læs og skynsöm. 
mbl.is Getum ekki prentað gjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra boðar hertar aðgerðir gegn almenningi.

Í nýlegu viðtali lofaði Steingrímur svo háum sköttum að vinnandi fólk gæti ekki staðið undir þeim.  Spurður nánar út í þessi ummæli ráðlagði ráðherrann Íslendingum að flytja til útlanda eða fremja sjálfsmorð. 
mbl.is Gjaldeyri ekki skipt í krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prumpskattur.

Á fréttamannafundi nú í bítið boðaði fjármálaráðherra sérstakan skatt á prump.  Aðspurður sagði ráðherra að þessi nýi skattur væri partur af umhverfisstefnu VG.  Í henni væri leitað leiða til að vernda andrúmsloftið og stuðla að sjálfbæri þróun.  Samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar verða þó ungabörn og dauðvona sjúklingar undanskilin.  Árni Páll félagsmálaráðherra sagði við fréttamenn að um mikinn sigur væri að ræða sem ætti eftir að koma öllum til góða.  Jóhanna Sigurðardóttir lofaði framgöngu Steingríms og sagði að þessi skattur ætti eftir að auka velferð á Íslandi.  Til að byrja með verður fólk skattlagt eftir þyngd en vonir standa til að innan fárra ára verði búið að græða tölvukubb í alla íslenska rassa sem mæli nákvæmlega útblástur og aðra úrgangslosun.

 


mbl.is Sykurskattur víkur fyrir matarskatti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot úr æviminningum forsætisráðherra.

Jóhanna Sigurðardóttir skellti sér í latex gallann og kallaði, elskan ég er tilbúin.  Ég er ekki elskan þín vældi íslenska þjóðin.  Þegiðu, gelti Jóhanna á móti og byrjaði að berja beran bossann.  Gaddakylfan stakst á kaf í bert holdið.  Íslenska þjóðin öskraði af öllum lífs og sálarkröftum.  Við það færðist Jóhanna öll í aukana og lamdi helmingi fastar.  Drrring,  drring.  Halló, Jóhanna hér.  Á hinum enda línunnar var fulltrúi AGS á Íslandi.  Hvernig ganga barsmíðarnar, spurði hann.  Jóhanna sagði þurrlega, mjög vel og ég þarf enga hjálp frá þér við þetta.  Íslenska þjóðin reyndi að skríða í burtu, rétt á meðan Jóhanna var í símanum.  Sem betur fer sá Jóhanna það.  Hún henti sér ofan á þjóðina og hvíslaði í eyrað, reyndu þetta aldrei aftur eða ég drep þig.  Kannski ég drepi þig bara strax, nei annars, það væri of gott fyrir þig.

 


mbl.is AGS vill ekki stýrivaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán til að borga lán, skynsamlegt?

Fleiri lán, meiri lán, aftur lán, enn eitt lánið, kredikorta lán, skuldabréfa lán, kúlulán, víxillán, bankalán, seðlabankalán.  Lán til að borga þeim sem lánuðu Björgólfi og hinum glæpamönnunum.  Er fólk alveg galið?
mbl.is Norðurlönd settu skilyrðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur árangur.

Íslenska þjóðin er búin að vera í sinni núverandi mynd.  Án peninga verður henni allar bjargir bannaðar.  Íslenski forsætisráðherrann verður trúður líkt og forsetinn er í dag.  Öll formleg og óformleg völd verða hjá erlendum landstjóra.  Allar stefnumarkandi ákvarðanir koma síðan frá Brussel.  Hin fagra nýja veröld hefur hafið inngöngu sína hér á landi.  Sumir fagna ógurlega og telja sér trú um að betri tíð sé í vændum.  Þar sem fólk taki tillit til nágrannans, hjálpi hvort öðru og dragi úr lífsgæðakapphlaupinu.  Einn slíkur maður er frændi minn sem bloggar um blóm, illsku sjálfstæðisflokksins og draumalandið ESB.  

Allir sem halda að eitthvað gott komi út úr þessum breytingum eru með hausinn í snjónum.  Það verða bara skattaóeirðir í boði AGS og ESB.  Skólakerfið hrynur enda kannski heldur engin tilgangur að mennta sauði.  Það verður látið duga að kenna krökkum að bíða í röð eftir mat og rífa ekki kjaft við yfirvaldið.  Heilbrigðiskerfið þarf heldur ekki að vera upp á marga fiska enda verða þeir notaðir til greiða erlend lán Björgólfs.  Siðan er mannkynið of margt og nauðsynlegt að grisja það.  Betra að láta fólk deyja en tjasla því saman og halda áfram að menga.  Nei, það eina sem er framundan er hungur, stríð, glæpir og drepsóttir.  Hærri skattar á allt og alla og nýir umhverfisskattar sem engin hefur heyrt af en fjöldi skriffina í Brussel sitja sveittir við að búa til.

 

 


mbl.is Þungar byrðar á ríkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll vill fjölga íslenskum vændiskonum í Hollandi?

Árni Páll félagsmálaráðherra sagði á þessum fundi að íslenska ríkisstjórnin væri að undirbúa útrás íslenskra kvenna til Hollands.  Þar væri næg eftirspurn eftir þeirra framlagi og hluti af þeirra launum yrði notaður til að borga Icesave.  Þegar gengið var á ráðherrann og hann spurður við hvað íslensku konurnar ættu að starfa.  Sagði Árni að þær fengju störf í þjónustu við ferðamenn.  Gengið verður frá samkomulaginu um leið og Alþingi samþykkir að greiða Icesave.   
mbl.is Mikilvægt að draga úr atvinnuleysi og styrkja velferðarkerfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin naut góðs af Icesave.

Getur verið að kosningabarátta stjórnmálaflokkana hafi verið kostuð af hluta með Icesave og erlendum bankalánum?  Þáði Sjálfstæðisflokkurinn fé frá Björgólfi og fyrirtækjum tengdum honum.  Þáðu ráðherrar greiðslur frá þessum bankabófum í sína eigin kosningabaráttu.  Er Steingrímur nokkuð Ragnar Reykás í dulargerfi?

 


mbl.is Meirihluti mótfallinn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paris Hilton verður talsmaður Íslands.

Samfylkingarfélagið í Reykjavík hefur skorað á ríkisstjórnina að ráða ofurstjörnuna Paris Hilton sem talsmann Íslands.  Það muni auka trúverðuleika Íslands meðal alþjóðasamfélagsins og þjappa þjóðinni saman.  Aðspurður sagði Steingrímur J. að hann væri fúll að hafa ekki dottið þetta sjálfur í hug.  Árni Páll félagsmálaráðherra sagði að vel kæmi til greina að ráða frú Paris í stað Evu Jolly en ekki væri hægt að hafa þær báðar á launum samtímis.

paris.jpg

 


mbl.is Árni átti í vök að verjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 122047

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband