Færsluflokkur: Bloggar

Er ASÍ stéttarfélag vinnuveitanda?

Ég held að Gylfi og Vilhjálmur færu létt með að skiptast á starfi.  Þeir eru nefnilega báðir að verja hagsmuni lífeyrirsjóða og stórfyrirtækja.  Þeir segja nánast sömu hluti og Gylfi er meiri segja búinn að raka sig svo Vilhjálmur geti kysst hann almennilega.  Þakkað honum fyrir samstarfið með einum vel blautum rembingskossi.Kissing
mbl.is Halda áfram viðræðum í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BBC skrökvar

Ekki er allt sem sýnist og hefur BBC verið staðið að fréttafölsunum.  Hvar er sú frétt?

http://www.bbc.co.uk/blogs/theeditors/2009/06/what_really_happened.html


mbl.is Óeirðir á götum í Teheran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfyrirtækin skapa ekki gjaldeyri.

Margar fávísar konur og heimskir menn halda að álfyrirtækin skapi gjaldeyri.  Svo er að sjalfsögðu ekki nema í litlu mæli.  Þau borga laun og kaupa kannski íslenskan mat en þá er allt upp talið.  Gróðin fer í þeirra eigin vasa og Landsvirkjun borgar erlendar skuldir.  En hvað sagði forstjóri Alcoa um málið?

Fréttablaðið ræðir líka við Tómas Sigurðsson, forstjóra Alcoa á Íslandi, og aftekur hann með öllu að Alcoa hafi átt í óeðlilegum gjaldeyrisviðskiptum. “Við störfum samkvæmt fjárfestingarsamningi og í honum eru ákveðnar reglur um okkar gjaldeyrisviðskipti. Öll okkar viðskipti eru í samstarfi við Seðlabankann.” Tekið skal fram að öll álfyrirtækin hér á landi hafa undanþágur frá reglum um gjaldeyrismál. Þar á meðal 9. grein sem fjallar um skilaskyldu á erlendum gjaldeyri, sem er einmitt sú grein sem FME leggur mesta áherslu á í sinni rannsókn.

Það er einmitt það, öll álfyrirtækin hafa undanþágur frá reglum um gjaldeyrirmál.

 

 


mbl.is Fara framhjá gjaldeyrishöftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til sölu kennslumyndband í kannabisræktun.

Til sölu vandað kennslumyndband fyrir konur sem vilja stunda vændi í heimahúsum.  Farið er yfir alla helstu þætti sem skipta máli í ástartækni og öryggismálum.  Kennt er hvernig hægt er að yfirvinna feimni, sjá í gegnum kalla sem ekki eiga nægan aur og kynsjúkdóma.  Verð aðeins 3990 kr.

Höfum einnig til sölu nýtt kennslumyndband í kannabisræktun.  Tilvalið fyrir eldriborgara sem eigi erfitt með að ná endum saman.  Hægt er að stunda ræktunina í heimahúsum og þarf ekki mikla sérkunnáttu til.  Í myndbandinu verður farið yfir hvar má nálgast græðlinga, áburðargjöf, birtuskilyrði og varnir gegn forvitnum nágrönnum og lögreglu.  Verð aðeins 4990 krónur.
mbl.is Hert skatteftirlit boðað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breiðu bökin á bakinu.

Til sölu vandað kennslumyndband fyrir konur sem vilja stunda vændi í heimahúsum.  Farið er yfir alla helstu þætti sem skipta máli í ástartækni og öryggismálum.  Kennt er hvernig hægt er að yfirvinna feimni, sjá í gegnum kalla sem ekki eiga nægan aur og kynsjúkdóma.  Verð aðeins 3990 kr.

Höfum einnig til sölu nýtt kennslumyndband í kannabisræktun.  Tilvalið fyrir eldriborgara sem eigi erfitt með að ná endum saman.  Hægt er að stunda ræktunina í heimahúsum og þarf ekki mikla sérkunnáttu til.  Í myndbandinu verður farið yfir hvar má nálgast græðlinga, áburðargjöf, birtuskilyrði og varnir gegn forvitnum nágrönnum og lögreglu.  Verð aðeins 4990 krónur.


mbl.is Skref til baka í réttindum aldraðra og öryrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþekkt og ekkert nýtt.

Það er ekkert nýtt heldur að fólk sé drepið og rænt.  Það gerist oft á dag út í hinum stóra heimi.  Þess vegna skulum við ekkert vera að æsa okkur.  Látum bara þetta yfir okkur ganga og brosum. 
mbl.is „Þarf ansi mikið að ganga á“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IMF bjargar málunum.

Ísland sekkur og sumir kætast aðrir hreinlega ærast af fögnuði.  IMF er víst málið og þeirra góðu tillögur sem hæfasta fólk jarðar hefur samið fyrir óheppna Ísland.  IMF hefur samið áætlun fyrir Ísland til að koma okkur út úr þessari kreppu.  Áætlunin gengur út á að selja ríkisseigur og lækka laun.  Hún gengur líka út á að skera niður framlög til allrar almannaþjónustu.  Heilög Jóhanna hefur risið upp frá dauðum og boðar niðurskurð og sölu ríkisseigna.  Allt til að forða Íslandi frá drukknun.  En hvað verður eftir af Íslandi og íslensku samfélagi þegar búið verður að selja orkufyrirtækin, bjóða út löggæsluna og loka spítulum.  Ekkert.

  

 


mbl.is Laun ekki ósnert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt gras læknar fílaflensuna.

Samkvæmt nýlegri ekki frétt þá er íslenskt gras besta lyfið gegn fílaflensunni.  Er ekki hér komin góð hugmynd að mögulegri lausn á fjárhagsvanda íslenska ríkisins.  Selja smituðum gras.  Margir eru reyndar á þeirri skoðun að fílafuglasvínaflensan sé manngerð og bóluefnið sé hættulegra en flensan sjálf. 
mbl.is Til umræðu að auka viðbúnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð blessi Ísland.

Nýtt met hjá mér.  Nú er ég búinn að bulla nótt og dag og loksins tókst mér að komast inn á top 31.  Alveg magnaður árangur þó ég segi sjálfur frá.  Ég var búinn að gefa frá mér alla von.  Hafði bara komist inn á topp 300 með herkjum.  En 2. og 3. júní fóru hjólin að snúast.  Þessa daga fékk ég nefnilega 700 og 1200 heimsóknir.  1200 hundruð manns skoðuðu færslu mína um ósannsögli talsmanna Kredikorta hf. og mbl.is.  Nú er bara að bretta upp ermarnar og skíta í lófana.  100.000 heimsóknir here I come.  

 

 

HöfundurSlóðVikuinnlitVikuflett.Gestir/dagIP-t./dag //

Skýringar: "Vikuinnlit" og "Vikuflettingar" gefa til kynna samanlagðan fjölda innlita og flettinga síðustu 7 heila daga. "Gestir/dag" og "IP-tölur/dag" gefur til kynna meðalfjölda gesta og einkvæmra IP-talna pr. dag miðað við sama tímabil. Aðsókn dagsins í dag sést því ekki á þessum lista; til að sjá hana verður að fara inn á viðkomandi bloggsíðu og skoða síðueininguna "Heimsóknir" (hafi viðkomandi bloggari á annað borð ákveðið að hafa hana á síðu sinni).

 


Er Steingrímur að brjóta trúnað?

Maður hefði haldið að svona samningafundir væru trúnaðarmál.  Fulltrúar Íslands og Breta gætu rætt bróðurlega á milli sín án þess að íslenski fjármálaráðherrann léki atburðarrásina með tilþrifum fyrir framan myndavélar og þingheim allan. 

Kannski er Steingrímur að segja ósatt?


mbl.is Minnisblaðinu stöðugt veifað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband