Færsluflokkur: Bloggar

Ísland er Jésu Kristur með fimmfaldan happadrættisvinning.

Það má draga þessa grein saman í eina setningu.  Svavar er sjálfur Jésú Kristur endurfæddur með fimmfaldan happadrættisvinning í vasanum.  Hann er hógvær að vanda og gefur í skyn að honum líki ekki niðurstaðan sem slík.  En auðvitað þurfi Ísland að borga til að vera með í gameinu áfram.  Halda áfram að taka lán og velta vandanum á undan sér.  Hinn kosturinn væri lánleysi og fátækt.  Svavar viðurkennir líka að ef bara einn banki hefði farið á hausinn þá hefði ríkið ekki átt að borga en fyrst allir bankarnir fóru á hausinn var ekkert annað hægt að gera í stöðunni en setja allt saman á Visa raðgreiðslur.  Skiljú! 
mbl.is Hagkerfið kemst í skjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur fær sér kaffibolla.

Vilhjálmur opnaði gluggann og dróg andann djúpt.  Inn um nefið og út um munninn.  Mikið er heimurinn dásamlegur í dag hugsaði hann.  Vilhjálmur klæddi sig úr öllu og leit aðdáunarfullum augun á nakinn líkamann.  Hvert einasta hár á réttum stað og vömbin líka.  Sturtan var í kaldari lagi svona til að koma blóðinu á stað.  Hann klæddi sig í fílanærbuxunar og sokkana sem Hannes Hólmsteinn hafði gefið honum fyrir nokkrum árum.  Allt á sínum stað sagði hann við sjálfan sig og æddi út í þjóðfélagið. 

Vilhjálmur er einn af þessum flóknu mönnum.  Vill bæði AGS lánið og lága vexti.  Vill bæði vera í stjórn og andstöðu.  Hann vill stjórna andstöðunni og vera í stjórn.  Vilhjálmur er svo hæfileikaríkur að hann getur verið tveir eða jafnvel fleiri menn á sama tíma.  Geri aðrir betur!


mbl.is „Allir þurfa að standa saman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólína Þorvarðardóttir, grínisti eða hryðjuverkakona?

Í nýlegri bloggfærslu sagði Ólína Þorvarðardóttir eftirfarandi:

Stjórnarandstæðingar virðast hafa náð þeim merka árangri í þessu máli að trylla almenning úr hræðslu. Ábyrgur málflutningur eða hitt þó heldur. Í því ljósi er athyglisvert að rifja upp málflutning eins þeirra, Bjarna Benediktssonar, fyrir fáeinum mánuðum síðan, þegar hann talaði fyrir samkomulagi af þessu tagi í þinginu, eins og bent hefur verið á (hér). Það er ekki að sjá að hér tali einn og sami maðurinn.

Nú er látið í veðri vaka að stjórnvöld hafi skrifað undir samning sem muni koma þjóðinni á vonarvöl. Kjörin sem okkur bjóðist í þessum samningi séu afleit, og við munum aldrei geta risið undir þessu. Allt er þetta rangt.

Í samningnum felst að við getum hvenær sem er fengið að greiða þetta lán upp - og það getum við ef okkur býðst annað hagstæðara lán.  Auk þess gefst okkur greiðslufrestur fyrstu sjö árin - og það munar um minna í þeim þrengingum sem þjóðin gengur í gegnum nú.

 

Ólína virðist halda að fólkið í landinu séu bjánar hvort það sé vegna þess að hún komst á þing eða þekki margt fólk skal ósagt látið.  En hún stendur samt í þeirri trú að almenningur taki mark á Sjálfstæðisflokknum þegar hann er í stjórnarandstöðu.  Bjarni Ben. geti upp á sitt einsdæmi "tryllt almenning úr hræðslu."  

Ólína er líka svo klár að halda að hægt sé að taka endalaust lán til að borga gömlu lánin og blæs á áhyggjur þeirra sem telja á þjóðarbúið geti ekki greitt afborganir og vexti af Ice-save skuldunum.  Við þurfum sko ekkert að borga fyrstu sjö árin segir hún brosandi.   

Rekur Ólína heimilið sitt með lánum?


Fleiri álver og stærri banka, strax!

Nú verður að duga eða drepast.  Ef Ísland fær ekki tvö til þrjú risa álver verður atvinnuleysi og fólksflótti.  Það eina sem dugar til að koma okkur út úr þessari kreppu er að selja fallvötnin lægst bjóðanda.  Taka stór lán á okur vöxtum og láta steina litla skrifa upp á.  Við verðum að gera allt til að bjarga okkur.  Sveppatínsla og ferðamenn duga skammt til að borga lánin fyrir álversvirkjanir.  Ef við tökum ekki lán til að byggja orkuver fer þjóðin á hausinn!  Engin hagvöxtur verður og unga fólkið sem ekki vill vinna í álverum flýr land. 

Síðan verðum við líka að byggja upp alþjóðlegt bankakerfi sem gefur þjóðum sunnar í heiminum ekkert eftir.  Ísland þarf að verða Hong Kong norðursins og alveg tilvalið að láta Bjarna Ármansson og Sigurð Einarsson sjá um þá uppbyggingu.  Þar eru menn sem kunna til verka.  Íslenska bankakerfið þarf að standast samanburð svo Ísland geti orðið þjóð meðal þjóða.  Við verðum að hafa öfluga alþjóðabanka sem sinna grunnþörfum fólksins í landinu og rússnesku mafínunnar.  Þessar bankar þurfa líka að geta tekið þátt í alþjóðlegum fjárfestingarverkefnum sem eigendur þeirra standa að. 

Ég skora á Íslensk stjórnvöld að hætta þessu væli og byrja að byggja upp hið nýja Ísland með álverum og alþjóðlegum bönkum.  


mbl.is Stór verk í einkaframkvæmd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna tekur þjóðina í nefið.

Það má líka alveg segja að Jóhanna hafi tekið þjóðina í kommagatið en það þykir víst of dónaleg fyrirsögn.  Ég er nefnilega vandur að virðingu minni og dytti aldrei í hug að skrifa svoleiðis. 
mbl.is Erfitt að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur lýðræðsins.

Ég verða að taka undir með Svavari og óska þjóðinni til hamingju með þennan stórkostlega árangur.  Við fáum bæði að borga og borga ekki!  Svavar Gestsson er sko engin venjulegur gestsson heldur samningamaður af guðs náð.  Ef við hefðum þurft að borga þetta allt í einni greiðslu, sem hefði alveg getað orðið niðurstaðan ef Svavar hefði ekki verið þarna, þá værum við strax kominn á hausinn.  En í staðin förum við á hausinn um það leyti sem Svavar fer á elliheimili.

Sannarlega góður árangur og í reynd sigur lýðræðisins því Mugabe hefði ekki getað gert mikið betur.   


mbl.is Í raun ótrúlega góð niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins góðar fréttir.

Loksins fær íslenska þjóðin góðar fréttir sem gleðja verulega.  Við þurfum ekki að borga nema rúmlega 650 milljarða og síðan 250 milljarða í vexti.  Á móti koma náttúrulega gríðarleg verðmæti í verðlausum hlutabréfum.  Alveg kannski margar milljónir eða milljarðar.  Restina þarf íslenskur fátæklingur eða almenningur eins og sumir kalla hann að borga.  Glæsileg niðurstaða hjá Steingrími og Jóhönnu.  Þau lengi lifi, húrra, húrra, húrra!

 

 


mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreditkort hf. bulla og mbl.is bullar með.

Í þessari frétt er haldið því fram að Kreditkort hf. sé búið að mýkja og endurskoða allt innheimtuferlið hjá sér!  Þessi er nokkuð góður eiginlega bara helv. góður.  Því ég veit fyrir satt að þetta fyrirtæki hefur hert alla innheimtuferla og það verulega.  Hef reynt það á eigin skinni þó ég borgi alltaf!  Bara ekki áður en ég fæ útborgað.  En þetta fyrirtæki hefur verið ófáanlegt til að breyta því sökum tegundar af korti sem ég er með.  Þjónustulipurðin þegar kemur að einhverju öðru en að hækka heimildina er ekki upp á marga gullfiska.  "Nei, þetta er ekki hægt.", "Þú verður að tala við annan um þetta." o.s.fr. eru þau svör sem ég fæ.  Orðið sveiganleiki er ekki til hjá starfsfólkinu og örugglega ekki hjá þeim sem stjórna þessu fyrirtæki.

Ef ég borga ekki á gjalddaga eða fyrir gjalddaga fæ ég hótun um löginnheimtu alveg um leið.  Fyrir bankahrun tók þetta ferli um tíu daga og ekki var hótað lögfræðingum alveg strax.  Þeir komu í bréfi númer tvö ef ég man rétt.  Sem kom þó bara fyrir einu sinni fyrir þegar ég var ekki á landinu til að borga!  Í dag er bréfið komið 2-4 dögum eftir gjalddaga í lúguna hjá mér.  Manni er ekki gefinn neinn séns til að borga aðeins of seint.  

Ótrúlegt hvað mbl.is lætur nota sig til að ljúga að venjulegu fólki.  Kannski er þetta eitt af því sem rætt var á "leynifundunum" sem DV mátti ekki taka þátt í.  Voru fjölmiðlar þar beðnir um að birta ósannar fréttir til að blekkja almenning?  


mbl.is „Kreppukortið“ kemur á markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð og Borat.

Davíð og Borat eru báðir uppdiktaðir karakterar sem ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum.  Eini munurinn er að Davíð heitir sama nafni og höfundurinn Davíð Oddsson en Sacha Baron Cohen notaði Borat nafnið á sinn karakter. 

Davíð fór víða í stjórnkerfinu og "tók fólk" en Borat ferðaðist um Bandaríkin og plataði virðulega borgara þar í landi.  Davíð Oddsson seldi fólki grimmt persónu sína í kosningum.  Fyrst til borgarstjóra og síðan í forsætisráðherraembættið og herra Cohen seldi fólki myndina sína með góðum árangri.  Báðir þessir menn eru meistarar í sínu fagi.

Borat reyndi að stela Pamelu Andersson en Davíð stal íslensku þjóðinni og peningunum hennar.  Við borgum ekki baulaði Davíð og Borat sagði Nice!  Davíð sagði að íslenska þjóðin væri meðfærileg en Borat sagði að systir hans væri bæjarhóran.  Thank you very much.

borat-high-five.jpg

 


mbl.is Davíð lét AGS heyra það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 122092

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband