Færsluflokkur: Bloggar

Matador

Venjulegt fólk á Íslandi heldur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi klúðrað málunum og Samfylkingin sofið á verðinum(Davíð Oddsson).  Sama fólk heldur einnig að ESB sé hjálparstofnun fyrir fátækar þjóðir og evran bjargvættur.  En er þetta réttur skilningur á stöðu mála.  Gilda virkilega önnur lögmál á Íslandi en annarstaðar?

Upphafið af núverandi stöðu má rekja aftur til ársins 2001 og fall turnanna.  Í kjölfarið var ódýrum peningum dælt inn í hið alþjóðlega hagkerfi sem þekkir engin landamæri.  Með ótakmörkuðu lánsfé fór fjármálaskriða af stað sem lenti síðan á íslensku þjóðinni í október 2008.  Allir tóku þátt í leiknum og alveg sérstaklega Alþingismenn.  Þeir settu ný lög og afnámu þau gömlu.  Allt til að auðvelda Íslandi að vera með í þessum alþjóðlega leik.  

En hver samdi þetta spil og tilhvers?  Eins og með önnur spil t.d. Matador þá græðir höfundurinn raunverulega peninga en þeir sem kaupa spilið og spila það bara plat peninga.  Þetta er staðan sem íslenska þjóðin er í.  Við höfum spilað Matador í sjö ár og héldum að um raunverulega peninga væri að ræða.  Allir voru ríkir eða alveg að meika það.  Komin fjögur hús eða hótel á alla reiti.  

Á miðnætti síðasta haust kom pabbi inn i herbergið og gekk frá spilinu.  Henti því upp í hillu og sagði góða nótt við þjóðina.  Davíð slökkti ljósin og daginn eftir þegar þjóðin vaknaði var allt horfið.  Engin hús og engir peningar.  Eftir stanlausa spilamennsku í mörg ár situr þjóðin uppi með skuldir.  Við fengum nefnilega lánað fyrir spilinu.  

Aðrar þjóðir eru í sömu stöðu og við Íslendingar.  Þær keyptu Matador og héldu að þannig gætu þær orðið ríkar.  En auðvitað gilda ekki önnur lögmál á Írlandi eða Spáni heldur en á Íslandi.  Matador hagkerfið er jafn verðlaust á Spáni og á Íslandi.  Skiptir engu máli þó bankastjórinn heitir Jack Spam eða Davíð Oddsson.  Þeir einu sem græða á þessu eru framleiðendur spilsins og sá sem seldi okkur það.  

mbl.is Fall Saxbygg fleytir Smáralind í fang ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matador

Venjulegt fólk á Íslandi heldur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi klúðrað málunum og Samfylkingin sofið á verðinum.  Sama fólk heldur einnig að ESB sé hjálparstofnun fyrir fátækar þjóðir og evran bjargvættur.  En er þetta réttur skilningur á stöðu mála.  Gilda virkilega önnur lögmál á Íslandi en annarstaðar?

Upphafið af núverandi stöðu má rekja aftur til ársins 2001 og fall turnanna.  Í kjölfarið var ódýrum peningum dælt inn í hið alþjóðlega hagkerfi sem þekkir engin landamæri.  Með ótakmörkuðu lánsfé fór fjármálaskriða af stað sem lenti síðan á íslensku þjóðinni í október 2008.  Allir tóku þátt í leiknum og alveg sérstaklega Alþingismenn.  Þeir settu ný lög og afnámu þau gömlu.  Allt til að auðvelda Íslandi að vera með í þessum alþjóðlega leik.  

En hver samdi þetta spil og tilhvers?  Eins og með önnur spil t.d. Matador þá græðir höfundurinn raunverulega peninga en þeir sem kaupa spilið og spila það bara plat peninga.  Þetta er staðan sem íslenska þjóðin er í.  Við höfum spilað Matador í sjö ár og héldum að um raunverulega peninga væri að ræða.  Allir voru ríkir eða alveg að meika það.  Komin fjögur hús eða hótel á alla reiti.  

Á miðnætti síðasta haust kom pabbi inn i herbergið og gekk frá spilinu.  Henti því upp í hillu og sagði góða nótt við þjóðina.  Davíð slökkti ljósin og daginn eftir þegar þjóðin vaknaði var allt horfið.  Engin hús og engir peningar.  Eftir stanlausa spilamennsku í mörg ár situr þjóðin uppi með skuldir.  Við fengum nefnilega lánað fyrir spilinu.  

Aðrar þjóðir eru í sömu stöðu og við Íslendingar.  Þær keyptu Matador og héldu að þannig gætu þær orðið ríkar.  En auðvitað gilda ekki önnur lögmál á Írlandi eða Spáni heldur en á Íslandi.  Matador hagkerfið er jafn verðlaust á Spáni og á Íslandi.  Skiptir engu máli þó bankastjórinn heitir Jack Spam eða Davíð Oddsson.  Þeir einu sem græða á þessu eru framleiðendur spilsins og sá sem seldi okkur það.  

Stelpa pissar á hund.

Nóg pláss virðist vera fyrir "ekki" fréttir í þessum svokölluðu fréttamiðlum.  Fyrirsagnir eins og "12 létust í umferðaslysi á Indlandi.", "Sextug kona verður mamma í annað sinn." og "Paris Hilton gubbar á hund." eru dæmi um algerlega innihaldslausar og tilefnislausar fréttir sem ráða forsíðum íslenskra blaða og fréttamiðla.

Hver eru fréttirnar um Bildenbergfundi valdamestu manna veraldar.  Fundi þar sem afdrifaríkar ákvarðanir fyrir íbúa þessarar plánetu eru teknar.  Ekki hósta eða stuna svo mikið er víst.  Það mætti halda að einhvað leyndó færi fram á þessum fundum.  Barnaperrar að skiptast á myndum eða ráðstefna leigumorðingja.  

http://gullvagninn.blog.is/blog/hin_nyja_heimsyn/entry/877749/

 bild.jpg

mbl.is Jordan sagt upp - aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bildenberg bjargar málunum!

Bilderberg funda

Ráðstefna vandræðagemlinga
Heimselítan húkir á grísku lúxushóteli
eftir James P. Tucker Jr.
American Free Press
Móttekið 14. maí, 9:30 EDM

Bilderberg mikilmenninn komu í ljós, óbilgjarnir á svip þar sem þeir stigu úr eðalvögnum sínum fyrir utan Nafsika Astir Palace hótelið í Voliagmeni, Grikklandi.  Þeir komu frá nálægum flugvelli í Aþenu, í lögreglufylgd með vælandi sírennum.  Efnahagsmál heimsins eru efst á dagskrá fundarins.  Þeir munu rökræða hvernig eigi að nýta heimskreppuna og tilbúninginn í kring um "svínaflensuna" til að mjaka fram áformum sínum um heimsstjórn.  Dagskráin hefur lengst, jafnvel þó almenningur sé nú meðvitaðri um fundina.

Heimildarmenn innan samtakanna segja Obama muni fá fyrirskipanir um að reyna aftur að fá Bandaríkin til að taka þátt í alþjóðlega glæpadómstólnum.  Ef þingið staðfestir ICC sáttmálann, þá gildir hann umfram stjórnarskrána og er fær um að ganga gegn þinginu og hæstarétti og þröngva "alþjóðalögum" upp á Ameríku.  Leiðtogar Bilderbergara segjast skilja að þessi viðleitni verði að fara hljótt og án atgangs, vegna þess hve andsnúið þingið hefur verið gegn þessum sáttmála.

Bill Clinton fyrrum forseti, sem árið 1991 sótti Bilderberg fund sem lítt þekktur ríkisstjóri Arkansas og var svo kjörinn forseti 1992, lagði blessun sína á sáttmálann, jafnvel þó prufuatkvæðagreiðsla sýndi að yfir 90 þingmenn voru á móti, þar á meðal talsmenn heimsstjórnar sem voru hræddir við viðbrögð kjósenda sem var gert viðvart um málið af The Spotlight sem er fyrirmynd American Free Press.  Þannig að Clinton vogaði sér ekki að leggja sáttmálann fyrir þingið til staðfestingar, heldur varð hann að bíða betra færis.

Bilderberg á Óbama

En Bilderberg hópurinn á Obama forseta, sem sér sjálfan sig sem "borgara jarðarinnar".  Hann mun beita fagurgala við þá sem eru deigir við að styðja sáttmálann.  Hann mun vonast til að þingið sé jafnvel enn vinstrisinnaðra en eftir kosningarnar 2010.  Markmið hans, sett fram af Bilderberg hópnum, er að sannfæra hið nýja þing (sem tekur við í Janúar 2010) um að staðfesta ICC sáttmálann, seint á laugardagskvöldi, of seint fyrir sunnudagsblöðin og sjónvarpsblaðrara til að gera breytingar á dagskrá.

Þú munt ekki lesa um þetta í Bilderberg stjórnuðum Washington Post, New York Times, Los Angeles Times eða heyra um þetta á stóru hljóðvakamiðlunum.

tucker2

James P. Tucker Jr. er ritstjóri á American Free Press (AFP), þaulvanur fréttahaukur sem eyddi mörgum árum sem stjörnufréttamaður fyrir stærri fjölmiðla í Washington.  Síðan 1975 hefur hann hlotið almenna viðurkenningu innan Bandaríkjanna sem utan, fyrir umfjöllun sína um alþjóðlegar valdablokkir, svo sem Bilderberg hópinn.  Tucker er höfundur "Jim Tucker's Bilderberg Diary: One Man's 25-Year Battle to Shine the Light on the World Shadow Goverment", eða Dagbók Jim Tucker - 25 ára barátta manns við að bregða ljósi á skuggastjórnvöld heimsins.

Þýtt af vef AFP: FLASH! TROUBLEMAKERS CONVENTION

mbl.is Mesta fjármálaáfallið í 35 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur fámennar á Bildenbergfundum.

mbl.is Vilja auka hlut kvenna í viðskiptalífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brú til Brussels, aðra leið.

Skjaldborg um banka og brú til Brussels er það sem okkur er boðið upp á.  Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir einkavæðingu bankana með stuðningi allra flokka á þingi nema etv. VG.  Sjálfstæðisflokkurinn keyrði þjóðina í klessu og stóð síðan fyrir mestu ríkisvæðingu sem sögur fara af.   En flokknum hefndist fyrir í næstu kosningum þar sem þjóðin sagði nei takk.  En við hverju sagði hún þá já takk.   Klámlöggu með gráhærða lesbíu sér við hlið.  Meiri eignaupptöku og valdaafsali til Brussels? 

Ætli þetta sé ekki bara búið og hin fagra nýja veröld taki við.  Með skattaóeirðum, fjölgun glæpa, hertra viðurlaga gegn fólki sem talar tæpitungulaust.  Allt til að vernda börn og viðkvæmar sálir.  Ríkisstjórnin leggur sig siðan niður og flytur til Belgíu í góða veðrið með góða verðinu.  Allt á eina evru ef þú bara nennir að leyta.  Já, í Brussel er allt svo miklu betra, líka fólkið.  Þar ganga hlutirnir hratt fyrir sig og latir skriffinnar sjást ekki á götuhornum.  Þeir eru inni í fallegu húsunum að vinna vinnuna sína.  Vinnu sem Íslendingar þurfa ekki að vinna.  Ekkert frekar en að skúra gólfin eða vaska upp á veitingastöðum.  Nei, góðir hálsar, eftir innlimum í ESB þarf ekkert að gera nema bíða og brosa.  Skellurinn kemur hvort sem okkur líkar betur eða miklu betur. 

mbl.is Sóknaráætlun fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bulla á daginn og grilla á kvöldin!

Ekki er nú öll vitleysan alveg eins.  Ástandið í heiminum fer versnandi og á eftir að versna mikið.  Afhverju segi ég þetta?  Þessi kall segir það!
mbl.is Það versta mögulega afstaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seljum veiðileyfi á Árna Pál

Er ekki alveg tilvalið að selja útlendingum veiðileyfi á þessa fínu nýju ráðherra til að stoppa í fjárlagagatið.  Þeim finnst allavega sjálfsagt að selja veiðileyfi á almenning í landinu.  Árna finnst líka í lagi að ljúga ef tilgangurinn er góður.  T.d að koma í veg fyrir að fólk selja hlutabréf í banka sem er gjaldþrota.  Þá má fólk blæða án þess að Árni bláni í framan.  En um leið og ESB berst í tal blánar hann og byrjar að jarma ESB, ESB eða dauðinn.  ESB eða Norður Kórea.  Það er valið í augunum hans Árna.  Fjörugt hugmyndaflug hjá þessum nýja ráðherra.  Annað hvort gerir maður eins og hann segir eða vill og keyrir til Belgíu eða Ísland verður innlimað í Norður Kóeru. 

Fyrst hlutunum er stillt upp með þessum hætti þá vel ég ESB frekar en Norður Kóreu.  Bara ef Árni hefði nú sagt þetta fyrr.  Veit Steingrímur af þessu?  Kannski vill hann frekar Norður Kóreu.  Skrítið að Árni Páll vilja starfa með flokki sem vill verða hluti af Norður Kóreu en ekki ESB.  Er hægt að treysta manni sem leiðir fólk í stjórn sem vill að Ísland verði Norður Kórea? 

mbl.is Árni Páll fékk lyklavöld í ráðuneytinu
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Guð hjálpi okkur.

bushh_dees.jpg
mbl.is Óbreytt stjórnskipan
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Sigur lýðræðis, engin mætir

Draumur íslenskra stjórnmálamanna er að losna við kjósendur a.m.k. við þá sem kjósa aðra flokka.  Með inngöngu í ESB þá missir Alþingi völd sín og valdalítið, sumir segja í raun valdalaust, ESB þing í Strassborg tekur við.  En hvaða völd hefur þingið?

Samvkæmt Wikipediu þá er það misjafnt eftir sviðum hversu mikil völd ESB þingið hefur.  Í sumum málaflokkum hefur það tillögurétt um breytingar á lögum sem koma frá framkvæmdastjórninni.  Stundum hefur það neitunarrét en sá réttur gildir um fjárlög ESB en nær þó ekki til fjárframlaga til landbúnaðarstefnu sambandsins(CAP).  En í vissum málum hefur það engin áhrif á skipanir sem koma frá ráðherraráðinu eða framkvæmdastjórninni.

Þingmenn eru kosnir til fimm ára í senn.  Þingmenn þingsins eru í dag 785 en verða eftir gildisstöku Lissbon sáttmálans 751.  Þýskaland er með flesta þingmenn eða 99 og Malta með fæsta eða fimm.  Eftir því sem ríkin eru stærri eru fleiri kjósendur á bak við hvern þingmann.  Þetta er svipað kerfi og er í gildi á Íslandi í dag þ.e.a.s. landsbyggðin hefur meira vægi en Reykjavík.  Lýðræðislegt?

En þetta kemur kannski ekki að sök því frambjóðendur til þessara þingkosninga eru ekki fulltrúar einstakra landa heldur sérstakra Evrópuflokka.  Þessir Evrópuflokkar geta síðan samanstaðið af mörgum  flokkum sem hafa boðið sig fram í hverju landi fyrir sig eða hreyfingu sem hefur boðið fram í mörgum löndum t.d. Jafnaðarmannahreyfingin.   

mbl.is Lítilli kjörsókn spáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 122092

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband