Færsluflokkur: Bloggar

Samfylkingarfólk hatar hreindýr!

ESB sinnar kætast yfir þessari frétt.  Þarna sjá þeir draum sinn um reglugerðarfargan rætast.  Ópersónulegar reglur sem þarf að fara eftir.  Allt í röð og reglu, allt löglegt.  Það sem ekki er sérstaklega leyft skal drepið eða fargað.  Samfylkingarfólk í Reykjavík brosir út í bæði.  Það getur sofið rólega því kerfið virkar.

 


mbl.is Hóta að aflífa hreindýrskálf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráð til fólksfækkunar

1) Stríð

2) Náttúruhamfarir

3) Drepsóttir

4) McDonalds

5) Sætuefni

6) Nektarmyndir af Ingibjörgu Sólrúnu og Davíð Oddssyni

 

Annars þurfum við ekki að hafa áhyggjur af fólksfjölgun!  Heimildir herma að Obama og vinir séu að undirbúa alvöru heimsstyrjöld og drepsóttir handa okkur. 


mbl.is Attenborough vill draga úr fólksfjölgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég gerði það.

Eins og alltaf þá segja fyrirsagnir á greinum mínum lítið um innihaldið.  Þær eru eins og stjórnmálamenn með athyglissýki.  Grípa augað en segja ekkert til um það sem á eftir kemur.  En fyrirsögnin á þessu bloggi er undantekning.  Ég gerði það nefnilega í alvöru.  Ég borgaði Bjarna Ben peninga og ætlaðist til að fá eitthvað í staðinn.  Starfsmaður í fyrirtækinu hans tók við greiðslunni og gaf mér kvittun.  Með brosi á vör svona Mónu Lísu brosi rendi konan seðlabúntinu ofan í peningakassann.  En pulsan var vond svo vond að hún flaug beint í ruslið með snöggu vinstrihandar skoti. 

 

 
 

Ætli Björgólfur og Jón Ásgeir hafi ekki fengið töluvert meira fyrir aurinn sinn?


Líkræða Ingibjargar

Íslensk stjórnmál ganga út á að ljúga að fólki.  Ljúga að kjósendum, ljúga að flokksmönnum, ljúga að veiku fólki, ljúga að öldruðum, ljúga  og ljúga.  Síðan þegar ráðamenn eru ekki að ljúga vita þeir ekki um hvað þeir eru að tala.  Bulla hreinlega og búa til staðreyndir um leið og kjaftagatið opnast.

Ingibjörg hefur aldrei beitt sér fyrir að komið yrði böndum á bankana.  Hún hefur aldrei talað um neitt annað en glæsta framtíð Íslands með bankana í forystu.  Þeir væru það afl sem ætti að koma þjóðinni inn í nútímann.  Hennar fjármálavit er jafn vitlaust og fjármálaráðherra.  Ingibjörg heldur að verðmæti verði til í bönkum!

Þar verða bara til skuldir eins og komið er á daginn!  En rifjum upp hvað bankamálaráðherra hafði um þessa hluti að segja.

 

488680

 

5. ágúst 2008

Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það.

Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar.

Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma.

Í árslok 2006 má ætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás fjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi.

Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredirik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðan er sú að gagnrýnin var að verulegu leiti tilhæfulaus. Hinsvegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra.

Samskonar gagnrýni skýtur upp kollinum á nú í kjölfar þeirrar lausafjárkreppu sem kennd er við undirmálslán. Hún er þó ekki einskorðuð við íslenska banka, þar sem vandinn er alþjóðlegur.

Athygli vekur þó að háværasta gagnrýnin kemur frá samkeppnisaðilum bankanna á erlendum vettvangi. Löngum hafa sérfræðingar Danske bank haft horni síðu íslensku bankanna en fyrir skemmstu bættust Finnskir bankamenn í “grátkórinn”.

Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskir bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafi sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða.

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslensku bankakerfið sé mjög stöndugt.

Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leiti til sem finnskar reglur þar að lútandi veita betri réttindi en íslenkar myndu bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einhverjir bankar kæmust í lausafjárskort.

Því er rétt að halda því til haga sem rétt er þegar reynt er að kasta rýrð á fjármálastofnanir okkar þegar kreppir að.

Til að fara yfir stöðuna og til að efla samvinnu stjórnvalda og fjármálafyrirtækja um fjárfestingar erlendis mun Viðskiptaráðuneytið kalla til fundar með Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs í janúar. Ætlunin er að skapa varanlegan vettvang fyrir slíkt samstarf og verður janúarfundurinn fyrsta skrefið í þá átt.”

 


mbl.is Siðrof í íslensku samfélagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð ráð dýr

Ekki hef ég haft mjög náin kynni af þessum Jóni.  Allavega ekki jafn náin og kona hans hefur haft af honum síðustu ár.  En fyrir nokkrum mánuðum átti ég leið niður á Hilton hótel og án þess að þekkja mig nokkuð heilsaði hann mér með sínu fallega brosi.  Kannski hélt hann að ég væri öryggisvörður eða einhver merkilegur en allavega sagði kappinn hátt og snjalt "daginn". 

Brosið og kveðjan björguðu deginum og síðan þennan dag hefur hann vaxið í áliti hjá mér.  Nú er bara að vona að þessi nýja búð komist á koppinn eða allavega á klóið.  En eitt skil ég ekki alveg, hvers vegna þarf einhverja rosa fjármögnun á svona dæmi.  Húsnæði fæst út um allt fyrir ekkert og ekki vantar starfsfólk eða hugsanlega kúnna.  


mbl.is Jón Gerald kynnir Smart Kaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræði eða dauði

Hvernig rímar innganga í ESB við aukið lýðræði og meiri peninga handa íslenskum almenningi(plokkfiskur)?

 

sarky_1015343c


mbl.is Þriggja mánaða bataferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banki djöfulsins kaupir Iceland.

Þetta er kannski ekki alveg tæknilega rétt fyrirsögn og þó?  Það skyldi þó aldrei vera að þeir sem stjórna "hruninu" fái Iceland á góðum kjörum enda víst vænn biti þar á ferð.  Samkvæmt ýmsum upplýsingum þá stjórnar Rothschild fjölskyldan meiri auðæfum en sjálfur Jón Ásgeir og Björgólfur Thor til samans.  Meðlimir fjölskyldunar sinna allt frá vínrækt til fjöldamorða og allt þar á milli.  Ekkert mannlegt er þeim óviðkomandi. 

Ýmsar skemmtilegar sögur eru til um fjölskyldumeðlimi og hef ég sett nokkra linka á þær hér fyrir neðan ásamt öðru skyldu efni.

http://www.conspiracyarchive.com/NWO/Rothschild_Grail.htm

http://educate-yourself.org/nwo/

http://www.vald.org/falid_vald/

http://www.iamthewitness.com/DarylBradfordSmith_Rothschild.htm


mbl.is Keppast um Iceland keðjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baldur Þórhallsson, ég elska þig!

Jæja það var kominn tími á að ég kæmi út úr skápnum.  Frá tíu ára aldri hef ég staðið í þeirri trú að ég væri hinseginn.  Mörg sambönd hafa endað með ósköpum því ég vissi ekki hvað sönn ást var.  Allir karlmennirnir í lífi mínu hafa notað mig.  Ég var ekkert meira en einnar nætur gaman fyrir þá.  Palli var þó bestur og kom fram við mig sem manneskju.  Þeim unaðsstundum sem við tveir áttum saman gleymi ég aldrei nema náttúrlega ef ég fæ Alsheimer.

En þegar ég sá þig Baldur fyrst tók mitt litla hjarta stökk.  Hamingjustökk upp í heiðan sólskinsbjartan himininn.  Allar mínar áhyggjur hurfu því ég sá að þú varst öðruvísi.  Þú notaðir muninn til að gæla við tilfinningar mínar.  Læddir lostafullri tungunni upp í eyrað mitt og hvíslaðir hátt ESB, esb.  Ég hlustaði dáleiddur og hvíslaði á móti.  Taktu mig, gerðu það sem þú vilt við mig.  Ég er þinn að eilífu.  Leikar æstust þegar þú tókst mig í gegnum Gullna hliðið í Brussel.  Við horfðum báðir framan í dýrðina, þú örlítið fjær og móður en ég brosandi út að eyrum og fetinu nær.  

Ó, hvað lífið er dásamlegt, bara við tveir og 499 milljónir til viðbótar.  Þú skrifandi eitthvað gáfulegt á meðan ég elda súpu og hinar milljónirnar vinna fyrir okkur.  Ég sting upp á nafninu Paradís í Brussel á nýjustu ritgerðina þína.  Þú sussar blítt á mig og segir, nei elskan ég ætla að kalla þetta "Blái bossinn minn, aumur og marinn eftir smá ESB og BDSM".  Bláa höndin fær sko aldrei að snerta mig, bara þínar silkimjúku lúkur.  Ég segi Baldur þú segir ESB og svo kissumst við.     


mbl.is Vill Ísland í Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Thank you note to Mr. Thomsen

Til að leiðrétta allan misskiling birti ég hér með bréf mitt til herra P. Thomsen.  Vonandi hættir fólk að halda að ég hafi sent honum nektarmyndir af mér og nokkur klúr ástarljóð með.  Sá orðrómur er með öllu ósannur og leyfi ég mér að fullyrða að hann á ekki heldur við nein rök að styðjast. 

 

 

 

Dear Mr. Thomsen

As a proxy for the Icelandic nation I would like to thank you for all your
good work.  I know this hasn´t been easy for you but this hasn´t been easy
for me either.  So do your very best to unfreeze our great nation and give
Mr. Brown a big kiss from me and the family.

Yours truly
Bjorn Heiddal

 

 

 


mbl.is Segir túlkun Geirs byggja á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Golf í paradís

Íslendingar hafa verið að leika golf í paradís undanfarin sjö eða átta ár.  Þeir sem ekki nenntu að spila golf fóru á skíði til Aspen eða í safarí til Afríku.  Við heimkomuna var keyptur nýr jeppi eða þriðji fólksbíllinn handa yngsta ökumanninum í fjölskyldunni.  Engin var maður með mönnum eða kona með kellum nema gefa fartölvur eða mótórhjól í jólagjafir.  Fermingagjafirnar voru síðan ennþá flottari og brúðkaupskjafir síðan heilt eða hálft hús eftir efnahag.

Í dag er þessum ósköpum kennt um hvernig komið er fyrir íslensku þjóðinni.  Við vorum bara of gráðug segja sjálfskipaðar málpípur íslensku þjóðarinnar.  Innst inni trúa Íslendingar þessu eins og þeir trúðu því að Jón Ásgeir og Björgólfur Thor væru Mídas konungur endurfæddur.  Allt sem þessir kappar snertu á sínum tíma virtist breytast í skíra gull. 

En hvar er gullið núna?  Ekki undir rúmi og ekki heldur heima hjá Steingrími Joð.  Kannski er það hjá IMF.  Jón Ásgeir fékk lán hjá Björgólfi Thor vini sínum til að kaupa dótabúðir og íbúðir í New York.  Kannski fóru allir peningarnir í dótakaup handa vinum Björgólfs.  Íslensku þjóðinni blæðir og Jón Ásgeir græðir ekki neitt.  Hver græðir á því?  

Litli Jón á Íslandi þarf að borga lánið sitt og lán Jóns Ásgeirs.  Litli Jón getur þó huggað sig við þá hugsun að séra Jón er líka að missa allt sitt.  Þeir eru báðir gjaldþrota þökk sé óheftum aðgangi að erlendu lánsfé.  Sá fátæki og sá ríki féllu í sömu gildruna sem var handa þeim báðum.  Allir falla í gildruna og skiptir engu þó þeir viti af henni.  

Kannski ekki alveg allir.  Sum dýrin í skóginum verða jafnari en önnur.  En meirihlutinn mun hafa það skítt og flestir verulega skítt.  Ráðamenn Íslands monta sig af heitu vatni svo við deyjum ekki úr kulda og fiski í sjónum til að éta.  En hvað verður um þessar eignir á morgun?  Hvað ætlum við að selja til að borga allar skuldir Jóns og Björgólfs.  

Ingibjörg Sólrún vill selja íslensku þjóðarsálina handa lægstbjóðanda í Brussel og Geir Haarde ætlar að selja nokkur hundruð hvali til að bjarga málunum.  Stuttbuxnadeildin í Sjálfhælnisflokknum leggur sitt lóð á vogarskálina og vill leyfa Jóni Ásgeiri að selja brennivín í búðum sínum.  Vita stuttbuxurnar ekki að brennivín er böl og er sennilega skýringin á hvernig komið er fyrir okkur.

Allir aðalleikendur í þessu leikriti eru fyllibyttur eða fyrrverandi fyllibyttur í afneitun eða heitir það afvötnun?  Þeir sem hafa tosað Ísland ofan í gröfina hafa gert það með skerta dómgreind.  Verulega skerta af brennivíni og peningagræðgi.  Eða ætlar einhver að halda því fram að Jón Ásgeir, Davíð Oddsson, Ingibjörg Sólrún, Geir Haardi, Valgerður Sverrisdóttir og jafnvel Finnur einhver Ingólfsson séu vont fólk?


mbl.is Óttast að Írland verði gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Heiðdal
Björn Heiðdal
Höfundur er ræstitæknir á eftirlaunum og áhugamaður um exbox.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband