Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2009 | 16:45
Tóm loforð.
![]() |
Nýjan sáttmála um stöðugleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2009 | 08:04
Matarverð í ESB hærri en á Íslandi?
Fyrir nokkru skrapp ég til Ítalíu og tók þá þessar myndir af ESB verðlagi. Nú er bara að hósta upp nokkrum evrum og taka fram reiknivélina.
![]() |
Ísland þurfi að spila vel úr veikri stöðu gegn ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.4.2009 | 07:47
Svínaflensan kominn til Íslands?
Ég vaknaði í morgun með einkenni sem passa algjörlega við þessa svínaflensu. Ég er alveg þvílíkt drulluhræddur að breytast í svín með flensu. Nú vona ég að Jóhanna bjargi þessu áður en ég dey drottni mínum. Hvað hafa annars margir dáið í Evrópu?
Vissir þú að...
... ef við göngum í ESB fáum við ókeypis lyf við flensunni.
... andstæðingar ESB eru sennilega ábyrgir fyrir dreifingu flensunnar.
... ESB styrkir ónæmiskerfi þegna sinna með fjárframlögum!
... fátækt minnkar við inngöngu og hamingja eykst mjög mikið.
... að ef við sækjum ekki um á morgun fáum við aldrei inngöngu.
![]() |
Forsætisráðherra fyrirbyggi hræðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.4.2009 | 22:59
ESB er velferðarbúð
Vissur þú að ...
... ef við tökum upp evru getum við hætt að hafa áhyggjur.
... Íslendingar eru sérstaklega velkomnir í ESB.
... ný aðildaríki hafa alltaf fengið allt sitt fram í aðildarviðræðum.
... andstæðingar ESB gagnrýna það til skiptis fyrir of mikla
miðstýringu og of litla miðstýringu.
... ESB er partur af Evrópu.
... almenn skynsemi og kvennréttindi eru í forgangi.
... styrkjakerfi ESB hentar íslenskum konum í bændastétt mjög vel.
... sjóðakerfi ESB bíður eftir að styrkja aldraða og öryrkja á Íslandi.
... allar aðildarþjóðir ESB eru sammála um stefnu sambandsins!
... ESB vill þjóðaratkvæðagreiðslur um sem flest mál og fer eftir
niðurstöðum þeirra.
Ekkert stopp bara ESB!
![]() |
Skylt að sækja um ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.4.2009 | 19:14
Bólefni inniheldur fuglaveiru, óvart!
Samkvæmt þessum fréttum sendi bandaríski lyfjarisinn Baxter frá sér bólefni gegn flensu blandað með hinni hættulegu fuglaflensu. Baxter er um það bil að fá leyfi fyrir bólefni gegn þessari fuglaflensu. Þeirri spurningu hvort Baxter ætli sér að dreifa fuglaflensunni með bólefni til almennings er enn ósvarað. Nánar um málið hér.
![]() |
Mikill viðbúnaður hjá WHO vegna svínainnflúensu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2009 | 01:27
Merkilegt
Fyrir nokkrum árum sá ég viðtal við einhvern gyðing sem sagði að Hitler hefði verið afleitur listamaður. Svo vondar voru myndirnar víst að hvaða hæfileikalaus slefandi bjáni gat gert betur. Bara að tala um þær var móðgun við mannkynið. Sama álit hafði hann líka á Leni Riefenstahl og hennar verkum. Þau voru svo léleg að fimm ára langafabarn hans gat gert miklu betur. Hún hafði ekkert auga fyrir myndefni og heldur ekkert vit á þeim tækjum sem hún notaði. Öll hennar verk voru drasl sem áttu heima á haugunum.
Ekki þykist ég hafa mikinn áhuga á list en þessi listaverk eru töluvert meira fyrir augað en kúkur undir gleri eða mygluð brauðsneið með tómatsósu.
![]() |
Málverk eftir Hitler seljast dýrt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.4.2009 | 12:01
Samfylkingin gjörspillt!
Ekki nóg með að Jóhanna og Össur taki við styrkjum sem ekki eru gefnir upp, ef eitthvað er að marka nýjustu fréttir, heldur eru margir hátt settir flokksmenn á launum hjá ESB. Eiríkur Bergmann, Baldur Þórhallsson, Ágúst Einarsson, Gylfi Arinbjörnsson og margir fleiri. Allir þessir föðurlandsvinir þiggja ESB styrki fyrir sig sjálfa eða þær stofnanir sem þeir eru í forsvari fyrir. Ætli ESB vilji fá eitthvað í staðin fyrir þessar greiðslur?
Tökum dæmi um áróður af heimasíðu Samfylkingarinnar en þar segir um kosti ESB aðildar, þetta er ekki grín:
"... að íslensk tunga eflist að öllum líkindum við aðild að Evrópusambandinu? ESB leggur áherslu á menningarlega fjölbreytni í álfunni og hefur hlúð að tungumálum aðildarríkjanna, meðal annars með þýðingum ESB-skjala,"
Annað dæmi:
"... að með upptöku evru væri úr sögunni verðbólga eins og við þekkjum hana á Íslandi? Mikil verðbólga hér á að talsverðum hluta rætur að rekja til krónunnar. Verðbólga á evrusvæðinu öllu var um síðustu áramót 1,6% en verðbreytingar eru að sjálfsögðu mismunandi eftir ríkjum og svæðum innan ESB."
Ef ég skil þetta rétt þá mun aðild Íslands að ESB efla íslenska tungu með tilkomu skjalaþýðinga úr frönsku eða kannski ensku yfir á okkar ástkæra gamla góða. Síðan mun upptaka evrunnar sem tekur 5-10 ár lækka verðbólguna niður í 1,6% sem þó fæst ekki skriflegt. Verðbólga var 3,8% að meðallatali fyrir ári síðan og er í dag hæst í Litháen eða um 13,4% . Kannski fáum við 13,4% verðbólgu en ekki 1,6% eins og Samflykkingin lofar?
Að þiggja milljarða "styrki" frá ESB til að birta ESB áróður eða þiggja 30 miljónir til að gefa ríkiseigur. Hvort er verra?
![]() |
Fjármögnun flokka alltaf í sviðsljósinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.4.2009 | 18:06
ESB hatar íslenskar rósir
Óttalegt skrum er þetta hjá Jóhönnu og dauðasveitunum hennar. Ota íslenskum blómum að grunlausum kjósendum. Þykjast bera hag bænda á Íslandi fyrir báðum brjóstum sínum en vilja raunverulega ganga að þeim dauðum. Leyfa algjörlega óheftan innflutning á afurðum frá ESB. Er ekki einhver hræsni í þessu. Jafnvel ódýr kosningaáróður til villa um fyrir fólki. Telja fólki trú um að Samfylkingin sé á bandi þjóðarinnar. En því miður er svo ekki. Hún er í vinnu fyrir Jón Ásgeir og aðra íslenska útrásarbankaræningja. Því það eru þeir sem vilja Evru og ESB. Ekki íslenskir bændur, ekki sjómenn og heldur ekki fólkið sem stofnaði lýðveldið á Þingvöllum 1944.
Ekki má gleyma öllum sérfræðingunum sem sjá þægilegar stöður og góð laun í hillingum með inngöngu í ESB. Þá verður gaman að vera ábyrgðarlaus pólitíkus og kenna ESB um allt. Þá verður gaman fyrir eftirlitsiðnaðinn að framfylgja öllum 160.000 lögum og reglugerðum sem Brussel hefur búið til. Kannski verða til 6000 ný störf við að passa að allir hinir fari að settum lögum og reglum.
![]() |
Dreifa blómum og birki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
agny
-
malacai
-
kruttina
-
axelthor
-
duddi-bondi
-
baldvinj
-
bene
-
kaffi
-
bjarnihardar
-
bleikaeldingin
-
gattin
-
baenamaer
-
brandarar
-
dora61
-
ellyarmanns
-
ea
-
folkerfifl
-
fridjon
-
fridaeyland
-
killjoker
-
gislihjalmar
-
gudni-is
-
vglilja
-
gummisteingrims
-
muggi69
-
gudnym
-
gullvagninn
-
maeglika
-
haukurn
-
heidathord
-
heimssyn
-
gorgeir
-
hordurj
-
hrafnathing
-
isleifure
-
jensgud
-
jonnnnni
-
enoch
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
hugsadu
-
katrinsnaeholm
-
karisol
-
krist
-
kristinhrefna
-
kjoneden
-
minkurinn
-
vonin
-
maggib
-
maggaelin
-
vistarband
-
marinogn
-
omarragnarsson
-
huldumenn
-
palmig
-
fullvalda
-
seinars
-
sigmarg
-
siggisig
-
sigurjonn
-
sms
-
soley
-
steingerdur
-
tomasha
-
tommi
-
vefritid
-
vertu
-
vestfirdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 122092
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar