1.4.2007 | 10:37
Alcan spalcan
Svo virðist að þeir sem styðja álver geri það út frá eigin hagsmunum og græðgi. Allir vilja fá álver í garðinn sinn svo hinir fái það ekki. Hinir mega ekki græða því þá hlýt ég að tapa. Afhverju smíðum við ekki stærsta álver í heimi á Ísafirði?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 11:03
Nostradamus og USA.
Ekki kann ég frönsku en tuttuga ára gamlar íslenskar þýðingar á spádómum Nostradamusar (Guðmundur S. Jónasson) hafa að geyma eftirfarandi boðskap. Vesturlönd ráðast á múslima og múslimar á Vesturlönd. Einstaka vísur og skýringar á þeim segja lítið og geta þess vegna passað við hvað sem er allt eftir hugarástandi þess sem les.
Túlkanir benda líka til þess að Bandaríkin muni draga þjóðir heims á asnaeyrum og byrja blóðuga styrjöld og ráða niðurlögum þriggja landa. Sú styrjöld varir í 27 ár. USA þarf ekki 27 ár til að ráðast á 3 lönd og hertaka þau. Miðað við hernaðarmátt USA í dag og pólitísk landslag er þetta útilokað. Sennilegast munu Bandaríkin byrja á einhverju sem þau klára ekki.
USA hafa hertekið Afganistan og Írak en vantar þriðja landið í safnið til að uppfylla spádómana. Í einni þýðingunni segir Nostradamus að USA (Bush eða næsti forseti, mín hugmynd) muni ráða niðurlögum hávaxins leiðtoga. Einu mennirnir sem Bush langar að bomba eru lítill trítill (Íran) og myndarlegur sláni (Sýrland) samkvæmt þessu verður Sýrland fyrir valinu en ekki Íran. Kannski er tveir fyrir einn tilboð í gangi.
Samkvæmt þýðingum Guðmundar mun engin mannlegur máttur geta ráðið niðurlögum andkrists heldur verður elding honum að bana. Hér er sennilega átt við ríki andkrists og varla venjulega eldingu. Ef Bandaríkin verða fyrir skakkaföllum t.d. loftsteinn eða kjarnorkuárás er skýringin komin á því afhverju þau klára ekki stríðið sem þau byrjuðu á og hvers vegna Bandaríkin verja ekki Evrópu(NATÓ) fyrir innrás múslima.
Andkristur mundi aldrei fæðast sem allslaus svartur svertingi í svörtustu Afríku miklu líklegri kenning er að hann fæðist í voldugu landi og yrði síðan leiðtogi þjóðar sinnar. Réttur maður á réttum stað sparar tíma.
![]() |
Bandaríkin neita að skiptast á föngum við Írana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 1.4.2007 kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2007 | 22:52
Vændi
![]() |
Mikill meirihluti vill að kaup á vændi verði refsiverð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2007 | 22:46
Vændi og íslenska leiðin.
Eftir að hafa þrætt ýmis kvennablog um vændi og fylgst með umræðunni í fjölmiðlum hef ég komist að einu merkilegu. Ekki einn kjaftur talar um að hjálpa aumingja mönnunum sem sækjast í vændi. Það þarf ekki að hjálpa þessum köllum. Helst bara senda þá í yfirfull fangelsi og kenna þeim lexíu þar.
Hjá þessum konum vottar ekki fyrir samúð eða hjálpsemi við þessa karla. Manna sem ráða ekki við kynhvötina og fá lítið eða ekkert heima hjá sér og sumir njóta þessa að drottna yfir konum og kannski niðurlægja þær.
Katrín Anna er ein þessara kvenna. Henni fynnst sænska leiðin eitthvað spennandi. Á blogsíðu sinni vitnar hún í rannsókn eftir Sven Axel Månsson. Samkvæmt niðurstöðum hans eru karlar sem sækjast í vændi aðallega "taparar" sem eiga erfitt að fá konur nema borga þeim og síðan einhverjir klám og ofbeldisfíklar.
Samkvæmt þessu er alveg augljóst að stóra vandamálið sem þarf að leysa er löngun karla í kynlíf með konum, öðrum mönnum eða hverju því sem ekki þarf að hrista. Ef löngun karla í kynlíf gufar upp hættir vændið. Þetta hljóta allir að sjá. Nú er bara að biðja Katrínu og hennar stöllur að beina umræðunni í réttan farveg.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2007 | 03:34
Áfallahjálp við leiðinlegum Spaugstofuþáttum.
Setjum Kalla á þakinu og alla hina gaurana beint á Litla Hraun. Skortur á rými og fangavörðum ætti ekki að stoppa okkar ástkæra dómsmálaráðherra.
Ég skal kenna ykkur smá trikk til að fá útrás fyrir leiðinlegum Spaugstofuþáttum. Mætið í Melabúðina á Föstudögum klukkan sex, fyllið kerruna og svo þegar Karl Ágúst stendur í röðinni við kjötborðið hlaupið á hann með kerruna á undan ykkur. Munið að biðjast afsökunar svo þið fáið að koma aftur í búðina og endurtaka leikinn.
Can´t beat the feeling!Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2007 | 03:30
Áhugaverðustu blogverjar Moggans.
Guð almáttugur og Mogginn hafa búið til þennan magnaða skoðavettvang. Blogverjar Moggans endurspegla lífið í landinu og það sem þar gerist. Allir eru byrjaðir að bloga á Mogga. Ömmur, afar, dónar, rónar, fyllibyttur, blekbyttur, ástríðu stjórnmálamenn og hinsegin.
Tomasha er sennilega sá afkastamesti miðað við færslufjölda. Í dag skrifaði hann t.d. 21 færslu áður enn hann fór að sofa. Stíll Tómasar er stuttur en segir allt sem segja þarf. Reyndar læðist að mér sá grunur eftir lesturinn að Tómas þessi sé í Sjálfstæðisflokknum. Það er nú reyndar ekki ein af dauðasyndunum sjö hér í Moggalandi.
Jenfo er ekki í Sjálfstæðisflokknum. Stíll hennar er persónulegur og auðlesinn. Síðan inniheldur bæði skrif um daglegt líf höndar en þó mest comment á fréttir.
Fridjon skrifar um sitt nýja líf í USA, fróðleg lesning.
Kleopatra commentar lítið á fréttir en skrifar þeim mun meira um sjálfa sig. Fín lesning fyrir verðandi einstæðar mæður með smá vandamál.
Talandi um vandamál hér er sennilega persónulegasta síðan sem ég hef fundið á Moggalandi.
Hlini er með bestu hárgreiðsluna af öllum Mogga blogurum. En lestur síðunnar kannski bara fyrir harða aðdáendur.
Velstyran er náttúrulega alveg einstök. Skrifar um stjórnmál og fleira. Er samt meiri blogspot blogari.
Jonvalurjensson er sá allra skemmtilegasti Mogga blogari sem ég hef rekist á. Stútfullur af fróðleik og réttum skoðunum. Honum er allt heilagt þegar kemur að trúmálum og hómósexualistum og öðru góðu fólki. Hann leggur mikla vinnu í heimildir og svarar öllum sem virða reglurnar hans. Ritskoðar spjallþræði sína til að vernda lesendur frá illum áhrifum og dónaskap.
Eddabjork Greinilega mest fyrir hana sjálfa og vinafólk.
duasembloggarekki er vinkona Eddubjork og kýs eitthvað allt annað en Sjálfstæðisflokkinn. Þessi blogari sannar en og aftur hvað Moggablogið er fjölbreytt.
Prakkarinn er með bestu andlitsmyndina. Það er eitthvað prakkaralegt við þetta fés.
Peturty er alvöru kommi eða marxisti. Veit reyndar ekki hver er munurinn á þessum hugtökum. En hvað um það þessum kalli leiðist ekki að skrifa.
Jensgud er mikill brandarakall og gervigrasafræðingur. Svo er hann líka áhugamaður um Útvarp Sögu.
Hoskuldur er latur að bloga en alltaf gott að kannast við starfsmenn Moggans.
Ekki má gleyma einum t0lvunörd eða svo. Kari-hardarson bloggar um tölvur og allt sem honum fynnst skrýtið og skemmtilegt.
Þessi listi er rétt að byrja.
Bloggar | Breytt 28.3.2007 kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2007 | 15:22
Ljót hús og álver
Hvaða snillingur stendur á bakvið öll ljótu og litlausu húsin sem byggð hafa verið. Gráir kassar og endalaust malbik með slaufum og hringtorgum til að komast heim til sín. Mín kenning er sú að verktakarnir hafi notað sömu teikninguna fyrir vinnuskúrana og íbúðarhúsnæðið.
Það virðist vera í tísku nú um þessar mundir að hafa allt grátt og litlaust. Helst líka lélegt og illa smíðað og ekki skemmir fyrir ef plássið nýtist illa. Flest nýtt íbúðarhúsnæði sem byggt hefur verið á undanförnum 5 árum er bara ljótt og illa hannað. 120fm 5 herbergja íbúð og stofan er 3*5m!
Framtíðarsýn ráðamanna okkar er frekar döpur. Ljót hús og álver til að vinna í. Burt með alla nýsköpun og hátækni við viljum álver og pólska Íslendinga til að vinna í þeim.
Ég ætla að kjósa Framsókn og Sjálfstæðiflokkinn. Fleiri álver og ljót hús, takk fyrir.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.3.2007 | 21:01
Bolton klikkar ekki.
Alveg ótrúlegt hjá Bolta kallinum að kalla árás góðvina okkar í Ísrael varnaraðgerð. Bush, Dick og Bolton reiknuðu með auðveldum sigri Ísraels á nokkrum Hizbollum. En þetta voru engar vatnsdeigsbollur enda vatn af skornum skammti.
Yfirmenn Ísraels voru búnir að plana árás á Hizbollur sex mánuðum áður en bollurnar stálu og drápu nokkra saklausa hermenn. Sennilega friðarhermenn. Planið gerði ráð fyrir loftárásum en litlum landhernaði. Planið klikkaði, 150 Ísraelar dánir og Olmert kallinn fór í fýlu.
Ég vissi að Olmert og Bush væri alveg skítsama um araba en þeim er greinilega líka skítsama um gyðinga.
![]() |
Bolton hreykinn af framgöngu Bandaríkjanna í Líbanonstríðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2007 | 20:36
Lýgur frekt fólk meira en aðrir?
Í gegnum starf mitt hef ég fengið að kynnast vænum slatta af fólki. Flest þau kynni hafa verið ánægjuleg en fátt fer meira í taugarnar á mér en fólk sem lýgur. Nýlega reyndi manneskja að ljúga upp á mig verknaði sem ég gerði ekki. Annar aðili sem gaf sig út fyrir að vera alveg stálheiðarlegur hafði þann leiða ósið að segja ekki satt og rétt frá.
Báðar þessar manneskjur voru verulega frekar og völtuðu yfir allt og alla. Samdi illa við fjölskyldur sínar og hugsuðu mikið um peninga.
Nú þurfa stjórnmálamenn oft að ljúga skyldu þeir vera frekir?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.3.2007 | 11:14
Góðir menn og Hitler.
Moqtadas al-Sadrs mun vera í miklum metum hjá Bush forseta. Samkvæmt óstaðfestum heimildum á Sadr að gegna lykilhlutverki í Armageddon Bandaríkjaforseta. Bandaríkjaher bað forsetan um leyfi til að ráða Sadr af dögum en fékk ekki. Nú er þessi vinur Bush og bandarísku þjóðarinnar orðinn ósnertanlegur og stuðningur við hann fer vaxandi.
Sagan endurtekur sig og ljóst að Arafat og Saddam Hussein voru ekki Hitler. Hver veit nema þessi Moqtadas al-Sadrs sé næsti Hitler. Margt gott hefur þú gefið okkur George Bush sjúss.
![]() |
Aðstoðarmaður al-Sadrs á fund með forsætisráðherra Íraks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
agny
-
malacai
-
kruttina
-
axelthor
-
duddi-bondi
-
baldvinj
-
bene
-
kaffi
-
bjarnihardar
-
bleikaeldingin
-
gattin
-
baenamaer
-
brandarar
-
dora61
-
ellyarmanns
-
ea
-
folkerfifl
-
fridjon
-
fridaeyland
-
killjoker
-
gislihjalmar
-
gudni-is
-
vglilja
-
gummisteingrims
-
muggi69
-
gudnym
-
gullvagninn
-
maeglika
-
haukurn
-
heidathord
-
heimssyn
-
gorgeir
-
hordurj
-
hrafnathing
-
isleifure
-
jensgud
-
jonnnnni
-
enoch
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
hugsadu
-
katrinsnaeholm
-
karisol
-
krist
-
kristinhrefna
-
kjoneden
-
minkurinn
-
vonin
-
maggib
-
maggaelin
-
vistarband
-
marinogn
-
omarragnarsson
-
huldumenn
-
palmig
-
fullvalda
-
seinars
-
sigmarg
-
siggisig
-
sigurjonn
-
sms
-
soley
-
steingerdur
-
tomasha
-
tommi
-
vefritid
-
vertu
-
vestfirdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar